"Eitthvað hefur farið alvarlega úrskeiðis"
"ÞETTA er mjög ánægjulegt en hins vegar kemur niðurstaðan mér ekki á óvart," segir Jakob R. Möller verjandi Tryggva Jónssonar. "Málatilbúnaður ákæruvaldsins hékk á því að orðið "lán" í 43. grein ársreikningalaga sé skilið mjög sérstökum skilningi. Dómurinn hrekur það í mjög ítarlegum rökstuðningi. Ákæruliðirnir fjórir sem vörðuðu meint brot á ársreikningalögunum þeir héngu algjörlega á þessum sérstæða skilningi ákæruvaldsins á orðinu "lán" í 43. greininni. Þetta var barátta um lögfræðilegan skilning og dómurinn tók okkar skýringu og hafnaði algjörlega skýringu ákæruvaldsins. Það sýndi það að okkar umbjóðendur höfðu ekki brotið af sér."
Jakob bendir á að málið í heild hafi verið mjög kostnaðarsamt, fyrir alla aðila. "Það er búið að verja til þessa máls óhemju fé, tíma og mannafla af hálfu ríkisins. Af hálfu hinna ákærðu er líka búið að verja miklu fé og miklum tíma. Tími þessa fólks sem þarna á hlut að máli er náttúrlega mjög dýrmætur, þetta er fólk sem aflar mikils fjár fyrir sig, fyrirtæki sitt og þjóðarbúið. Það hefur truflast frá þeirri iðju núna í þessi tæplega fjögur ár. Frá þeim sjónarhóli hefur þetta mál verið óskaplega dýrt fyrir þjóðarbúið."
Hann segir niðurstöðu héraðsdóms áfellisdóm yfir efnahagsbrotadeild Ríkislögreglustjóra. "Það er enginn vafi á því. Ekki beinlínis yfir rannsókninni, heldur hvernig hún fór af stað, hvernig henni var stjórnað og hvernig svo ákæran var gerð úr garði. [...] Það er náttúrlega eitthvað sem hefur farið alvarlega úrskeiðis."
Nánar í Morgunblaðinu. Smelltu hér til að gerast áskrifandi.
Til baka








Senda inn efni