[ Fara í meginmál | Forsíða | Veftré ]
mobile Fyrir farsíma | RSS þjónusta RSS | Podcast Podcast | Minnka letur Stærð Stækka letur
blog.is

Nýtt á mbl.is

Auglýsingar

Tenglar

Samgöngur

Lottó

Lottó  13.3.2010
6 8 10 22 37 7
Jóker
2 1 5 7 8  
Áskrift á www.lotto.is
Birt án ábyrgðar

Fasteignir:
mest skoðað

Ljósvallagata, 101 Reykjavík Ljósvallagata Reykjavík
Kópavogsbakki, 200 Kópavogur Kópavogsbakki Kópavogur
Barmahlíð, 105 Reykjavík Barmahlíð Reykjavík
Drápuhlíð, 105 Reykjavík Drápuhlíð Reykjavík
Hverfisgata, 101 Reykjavík Hverfisgata Reykjavík
Drafnarstígur, 101 Reykjavík Drafnarstígur Reykjavík
Lóuhraun, 220 Hafnarfjörður Lóuhraun Hafnarfjörður
Hafnarstræti, 600 Akureyri Hafnarstræti Akureyri
Ystasel, 109 Reykjavík Ystasel Reykjavík
Blásalir, 201 Kópavogur Blásalir Kópavogur
Innlent | mbl.is | 30.3.2006 | 11:49

Íslandspóstur þarf ekki að greiða Landsbanka bætur

Úrskurðarnefnd fjarskipta- og póstmála hefur felld úr gildi þá ákvörðun Póst- og fjarskiptastofnunar, að Íslandspósti beri að greiða Landsbankanum skaðabætur vegna fjártjóns, sem bankinn varð fyrir þegar starfsmaður á vegum Íslandspósts stal verðmætasendingu í vörslu fyrirtækisins.

Málavextir eru þeir, að þann 10. júní 2003 hvarf verðmætasending, sem var í vörslu Íslandspósts. Var lögreglunni tilkynnt um hvarfið tveimur sólarhringum síðar og við rannsókn málsins beindist grunur að tilteknum starfsmanni Íslandspósts. Við húsleit hjá starfsmanninum fundust 19.000 sterlingspund, 221.500 danskar krónur og 11.000 evrur. Starfsmaðurinn játaði við yfirheyrslu lögreglu að eiga sök á stuldinum og viðurkenndi að hafa eytt því fé sem upp á vantaði, þ.e. 18.500 dönskum krónum og 22.000 evrum. Landsbankinn krafðist þess í kjölfarið að Íslandspóstur bætti það tjón.

Nefndin segir m.a. í úrskurði sínum, að um sé að ræða refsiverðan verknað þar sem starfsmaður fari langt út fyrir heimildir sínar og starfssvið. Hin almenna regla í skaðabótarétti sé að vinnuveitandi beri ekki ábyrgð á slíkri refsiverðri hegðun starfsmanna sinna og þyki ekkert hafa komið fram sem réttlæti að horfið sé frá þeirri meginreglu hér.

© 2010 Árvakur hf. Öll réttindi áskilin

Fara til baka Til baka

 

Innlent — Fleiri fréttir

Í dag
Í gær