[ Fara í meginmál | Forsíða | Veftré ]
mobile Fyrir farsíma | RSS þjónusta RSS | Podcast Podcast | Minnka letur Stærð Stækka letur

Nýtt á mbl.is

Auglýsingar

Tenglar

Samgöngur

Lottó

Lottó  6.2.2010
2 16 20 30 33 14
Jóker
5 4 6 0 5  
Áskrift á www.lotto.is
Birt án ábyrgðar

Fasteignir:
mest skoðað

Lækjarvað, 110 Reykjavík Lækjarvað Reykjavík
Álftröð, 200 Kópavogur Álftröð Kópavogur
Sæviðarsund, 104 Reykjavík Sæviðarsund Reykjavík
Tómasarhagi, 107 Reykjavík Tómasarhagi Reykjavík
Ólafsgeisli, 113 Reykjavík Ólafsgeisli Reykjavík
Sumarhús Hallkelshólar, 801 Selfoss (dreifbýli) Sumarhús Hallkelshólar Selfoss (dreifbýli)
Kirkjuvellir, 220 Hafnarfjörður Kirkjuvellir Hafnarfjörður
Leynir Kaldakinn Lóð, 801 Selfoss (dreifbýli) Leynir Kaldakinn Lóð Selfoss (dreifbýli)
Vesturgata, 101 Reykjavík Vesturgata Reykjavík
Hringbraut, 107 Reykjavík Hringbraut Reykjavík
Innlent | mbl.is | 30.3.2006 | 17:14

Sýknaður af ákæru fyrir að taka myndir á kvennasalerni

Hæstiréttur hefur sýknað karlmann af ákæru fyrir að særa blygðunarsemi konu með því að taka hreyfimyndir af henni inni á kvennasalerni veitingahúss í Kópavogi þar sem hún var að hafa þvaglát. Staðfesti Hæstiréttur með þessu dóm Héraðsdóms Reykjaness.

Hæstiréttur staðfesti forsendur héraðsdóms, en þar segir, að hlutrænt séð og svo sem aðstæðum var háttað í umrætt sinn, verði ekki staðhæft að verknaður mannsins teldist lostugt athæfi, svo sem áskilið sé í 209. grein almennra hegningarlaga um brot gegn blygðunarsemi. Lostugt athæfi í skilningi 209. gr. almennra hegningarlaga sé athöfn af kynferðislegum toga og sem stjórnist af kynhneigð manna, en gangi skemmra en samræði og önnur kynferðismök. Ákærði hafi borið því við að það athæfi hans hafi ekki verið af kynferðislegum rótum sprottið og að hann hafi eingöngu verið að „fíflast“.

Auk þess segir dómurinn, að maðurinn verði í sakarmati að njóta vafans sem sé í málinu um þá huglægu afstöðu sem bjó að baki verknaði hans.

Hæstaréttardómararnir Ingibjörg Benediktsdóttir, Jón Steinar Gunnlaugsson og Ólafur Börkur Þorvaldsson dæmdu málið. Kolbrún Sævarsdóttir flutti málið fyrir hönd ákæruvaldsins en Jón Auðunn Jónsson var verjandi sakborningsins.

Fara til baka Til baka

 

Innlent — Fleiri fréttir

Í dag