Vegagerðin á Hólmavík flaggar í hálfa stöng
Fána Vegagerðarinnar á Hólmavík var flaggað í hálfa stöng, líkt og á Ísafirði og Patreksfirði, og blasti fáninn við vegfarendum í gær. Flaggað var í hálfa til þess að mótmæla frestun ríkistjórnarinnar á vegaframkvæmdum víða um land, að því er segir á fréttavefnum Bæjarins besta.
Frestunin gæti bitnað einkar illa á Strandamönnum en á Ströndum hafði verið ákveðið að bjóða út tvö stórverkefni nú í haust, veginn um Arnkötludal og breytingu á veginum um Hrútafjarðarbotn.
„Einnig verða stórframkvæmdir í Mjóafirði við Djúp, á leiðinni milli Hólmavíkur og Ísafjarðar, væntanlega fyrir barðinu á frestunum ríkisstjórnar Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks á framkvæmdum," að því er segir á Bæjarins besta.
Til baka








Senda inn efni