
Lögregla á staðnum þar sem sprengja sprakk í Istanbul. AP
Sextán særðust í þremur sprengingum í Marmaris
Sextán ferðamenn, þar af 10 Bretar, særðust í þremur sprengingum sem urðu í tyrkneska sumarleyfisbænum Marmaris í kvöld. Fyrsta sprengjan sprakk í lítilli rútu á aðalgötu bæjarins skammt frá hóteli þar sem um 30 íslenskir ferðamenn dvelja og sagði einn þeirra, Atli Már Gylfason, við Fréttavef Morgunblaðsins, að hann hefði heyrt sprenginguna þar sem hann var inni í herbergi sínu. Engan Íslending mun hafa sakað.
Þá sprakk einnig sprengja í kvöld í Istanbul í Tyrklandi og þar særðust sex Tyrkir. Ekki er vitað hvort málin tengjast.
Að sögn sjónvarpsstöðvarinnar CNN-Turk hafði sprengju verið komið fyrir undir sæti í rútunni sem var á ferð um aðalgötu bæjarins en þar er fjöldi bara, veitingahús og næturklúbba. Sextán manns, þar af 12 ferðamenn, særðust í sprengingunni. Um 45 mínútum síðar sprakk önnur sprengja nálægt höfninni í bænum og skömmu síðar sú þriðja nálægt fjölbýlishúsi. Engan sakaði í þeim sprengingum, að sögn CNN-Turk.
Atli Már sagði, að mikið uppnám hefði verið á svæðinu eftir að sprengjan í rútunni sprakk og lögregla og sjúkrabílar hefðu komið strax á staðinn.
Til baka








Senda inn efni

