[ Fara í meginmál | Forsíða | Veftré ]
mobile Fyrir farsíma | RSS þjónusta RSS | Podcast Podcast | Minnka letur Stærð Stækka letur
blog.is

Nýtt á mbl.is

Auglýsingar

Tenglar

Samgöngur

Lottó

Lottó  13.3.2010
6 8 10 22 37 7
Jóker
2 1 5 7 8  
Áskrift á www.lotto.is
Birt án ábyrgðar

Fasteignir:
mest skoðað

Ljósvallagata, 101 Reykjavík Ljósvallagata Reykjavík
Kópavogsbakki, 200 Kópavogur Kópavogsbakki Kópavogur
Barmahlíð, 105 Reykjavík Barmahlíð Reykjavík
Drápuhlíð, 105 Reykjavík Drápuhlíð Reykjavík
Hverfisgata, 101 Reykjavík Hverfisgata Reykjavík
Drafnarstígur, 101 Reykjavík Drafnarstígur Reykjavík
Lóuhraun, 220 Hafnarfjörður Lóuhraun Hafnarfjörður
Hafnarstræti, 600 Akureyri Hafnarstræti Akureyri
Ystasel, 109 Reykjavík Ystasel Reykjavík
Blásalir, 201 Kópavogur Blásalir Kópavogur
Halldór Ásgrímsson.

Halldór Ásgrímsson. mbl.is/Golli

Innlent | mbl.is | 31.10.2006 | 10:50

Halldór segir 30 ára reynslu af norrænu samstarfi hafa vegið þungt

Halldór Ásgrímsson, sem í morgun var kjörinn framkvæmdastjóri Norrænu ráðherranefndarinnar, segir að þriggja áratuga reynsla sín af norrænu samstarfi hafi vegið þungt í kjörinu, en hann sat sitt fyrsta þing Norðurlandaráðs árið 1976, tveimur árum eftir að hann var fyrst kjörinn á þing. Halldór telur að sú staðreynd að Íslendingur hafi aldrei gegnt embættinu hafi ekki haft áhrif í kjörinu. Hann segist mjög ánægður með niðurstöðuna.

Finnar sóttust einnig eftir embættinu, en að sögn Geirs H. Haarde, forsætisráðherra sem einnig situr þingið, tóku þeir úrslitunum drengilega. Finnski forsætisráðherrann viðurkenndi samt sem áður að þeir hefðu frekar viljað fá sinn mann í starfið.

Jens Stoltenberg, forsætisráðherra Noregs, sem lýsti kjörinu sagði að samstaða hafi verið meðal ráðherranna um valið.

Samkvæmt upplýsingum frá upplýsingaskrifstofu Norðurlandaráðs hefur fráfarandi framkvæmdastjóri, Per Unckel, lagt mikla áherslu á samtarf við Rússa, en það geti hins vegar breyst með nýjum manni.

Halldór tekur við starfinu þann 1. janúar næstkomandi.

Norræna ráðherranefndin var sett á stofn árið 1971. Hún er samstarfsstofnun ríkisstjórna Norðurlanda.

Forsætisráðherrar landanna hafa yfirumsjón með Norrænu ráðherranefndinni. Þeir hafa þó falið samstarfsráðherrum Norðurlanda og Norrænu samstarfsnefndinni að sjá um daglega samhæfingu opinbers pólitísks samstarfs landanna.

Þrátt fyrir að nafnið gefi annað til kynna fer samstarfið fram í mörgum ráðherranefndum. Flestir fagráðherrar Norðurlanda hitta norræn starfssystkini sín á vettvangi ráðherranefndarinnar tvisvar á ári.

Löndin skiptast á að fara með formennsku í Norrænu ráðherranefndinni eitt ár í senn. Ákvarðanir í Norrænu ráðherranefndinni eru teknar samhljóða.

Norrænu embættismannanefndirnar sjá um að undirbúa og fylgja eftir erindum sem koma til meðferðar í ráðherranefndum. Í embættismannanefndunum sitja embættismenn sem starfa í löndunum fimm.

Forsætisráðherra Norðurlanda funda reglulega, meðal annars fyrir leiðtogafundi Evrópuráðsins. Utanríkis- og varnarmálaráðherrarnir hittast jafnframt reglulega utan vettvangs Norrænu ráðherranefndarinnar.

© 2010 Árvakur hf. Öll réttindi áskilin

Fara til baka Til baka

 

Innlent — Fleiri fréttir

Í dag
Í gær