12 handteknir í viðamestu fíkniefnaaðgerð lögreglu á Suðurnesjum

Fíkniefnaleitarhundar að störfum
Fíkniefnaleitarhundar að störfum mbl.is/Júlíus Sigurjónsson

Í gærkvöldi og í nótt lagði lögreglan á Suðurnesjum ásamt fíkniefnadeild tollstjórans á Suðurnesjum og sérsveit og greiningardeild Ríkislögreglustjórans í skipulagða lögregluaðgerð gegn meintum dreifingar-og söluaðilum fíkniefna á Suðurnesjum. Tólf manns voru handteknir í aðgerðunum sem eru þær viðamestu að þessum toga sem framkvæmd hefur verið á Suðurnesjum.

Þegar mest var komu samtals 36 lögreglumenn og 4 tollverðir með tvo fíkniefnaleitarhunda að aðgerðunum þegar farið var í 5 húsleitir á sama tíma snemma á laugardagskvöldinu. Í öllum þessum húsleitunum fundust fíkniefni og voru níu aðilar handteknir og yfirheyrðir vegna meintra fíkniefnabrota. Samtals var lagt hald á um það bil 135 gr. af hassi, 65 gr. af hvítu efni og 10 e-töflur, samkvæmt upplýsingum frá lögreglu.

Uppúr miðnætti var farið í eina húsleit til viðbótar og þar voru 3 menn handteknir, en þar voru haldlögð 10 gr. af hassi og 1 gr. af amfetamíni.

Farið var á skemmtistaði í embættinu þar sem framkvæmd var líkamsleit á um það bil 20 einstaklingum sem grunaðir voru um vörslu fíkniefna og fundust á einum 2 gr. af amfetamíni.

„Segja má að þessi lögregluaðgerð sé lýsandi fyrir breytingar sem urðu um áramótin við sameiningu lögregluembætta í landinu. Lögreglan á Suðurnesjum mun leggja mikla áherslu á að ná tökum á brotastarfsemi sem tengist fíkniefnabrotamönnum sem hafa því miður verið of fyrirferðamiklir í umdæminu á undanförnum misserum. Lögð verður áhersla á aukna samvinnu á milli lögregluliða og er þessi aðgerð dæmi um vel heppnaða samvinnu," að því er segir í tilkynningu frá lögreglu.

Lögreglan leitar til almennings um að koma upplýsingum sem hann býr yfir um meint fíkniefnabrot í síma 420-1880 eða á netfang lögreglunnar á Suðurnesjum logreglan@dc.is

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert