
Stúdentaráð Háskóla Íslands finnst nýi stjórnarsáttmálinn vera óskýr um menntamál Myns/ÓÓ
Stúdentaráð HÍ krefur nýja ríkisstjórn um skýr svör
Bloggað um fréttina
-
Árni HelgasonGagnrýna eigin vinnu!
-
Fanney Dóra SigurjónsdóttirÞarna þekki ég þig!
-
Sigurjón SveinssonJafnrétti til náms?
-
TómasHaBjörgvin dyggur stuðningsmaður
Stjórn Stúdentaráðs Háskóla Íslands hefur sent frá sér ályktun um stjórnarsáttmála nýrrar ríkisstjórnar. Þar gagnrýnir ráðið að ekki sé tekin afstaða gegn skólagjöldum í opinberum háskólum og ekkert sé minnst á jafnrétti til náms. Stúdentaráð fagnar því þó að ný ríkisstjórn ætli sér að endurskoða lög um Lánasjóð íslenskra námsmanna.Tæplega 9.900 manns stunda nám við HÍ.
Í ályktun Stúdentaráðs HÍ kemur fram að kaflinn um menntamál mætti vera skýrari og krefur ráðið því ríkisstjórnina um svör við því hvort taka eigi upp skólagjöld við opinbera háskóla á kjörtímabilinu.
Stúdentaráð leggur líka áherslu á að jafnrétti til náms verði ekki skert til þess að ná markmiðum um að íslenskt menntakerfið skuli verða í fremstu röð í heiminum eins og gert sé ráð fyrir í stjórnarsáttmálanum.
Í ályktuninni eru því þó fagnað að ríkisstjórnin ætli sér að endurskoða lög um Lánasjóð íslenskra námsmanna með það að markmiði að bæta kjör námsmanna og hvetur ríkisstjórnina til þess að hafa víðtækt samráð við hagsmunafélög stúdenta þegar að þeirri endurskoðun kemur. Einnig fagnar stjórn Stúdentaráðs þeirri áherslu sem lögð er á kynjajafnrétti í stjórnarsáttmálanum og hvetur ríkisstjórnina til að afnema launaleynd hið fyrsta.
Til baka








Senda inn efni

