Magnús Þór Gylfason ráðinn skrifstofustjóri borgarstjóra

Magnús Þór Gylfason.
Magnús Þór Gylfason.

Borgarráð Reykjavíkur samþykkti í dag tillögu borgarstjóra um ráðningu Magnúsar Þórs Gylfasonar, viðskiptafræðings, í stöðu skrifstofustjóra borgarstjóra til eins árs. Magnús Þór gegnir starfinu í leyfi Kristínar A. Árnadóttur sem utanríkisráðuneytið hefur ráðið til að leiða framboð Íslands til Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna.

Borgarráð samþykkti einnig að Magnús Þór gegni starfi borgarritara þar til ráðið hefur verið í stöðuna. Umsóknarfrestur um hana hefur verið auglýstur til 28. ágúst nk.

Magnús Þór Gylfason er 33 ára viðskiptafræðingur frá Háskólanum í Reykjavík. Hann gegndi starfi skrifstofustjóra og verkefnisstjóra á skrifstofu borgarstjóra síðasta vetur og situr í starfshópi borgarstjóra um bættan rekstur Reykjavíkurborgar. Hann var framkvæmdastjóri borgarstjórnarflokks Sjálfstæðisflokksins á árunum 2002 til 2006 og framkvæmdastjóri Sambands ungra sjálfstæðismanna á árunum 2000 til 2002.

Magnús Þór er kvæntur Elvu Dögg Melsteð, framkvæmdastjóra Magg ehf., og eiga þau tvö börn.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert