[ Fara í meginmál | Forsíða | Veftré ]
mobile Fyrir farsíma | RSS þjónusta RSS | Podcast Podcast | Minnka letur Stærð Stækka letur
blog.is

Nýtt á mbl.is

Auglýsingar

Tenglar

Samgöngur

Víkingalottó

Víkingalottó 17.3.10
5 6 36 37 38 43
28 41   39
Jóker
5 1 5 1 4  
Áskrift á www.lotto.is
Birt án ábyrgðar

Fasteignir:
mest skoðað

Barónsstígur, 101 Reykjavík Barónsstígur Reykjavík
Sæviðarsund, 104 Reykjavík Sæviðarsund Reykjavík
Spítalastígur, 101 Reykjavík Spítalastígur Reykjavík
Selhólsbraut, 801 Selfoss (dreifbýli) Selhólsbraut Selfoss (dreifbýli)
Arnarheiði, 810 Hveragerði Arnarheiði Hveragerði
Álfhólsvegur, 200 Kópavogur Álfhólsvegur Kópavogur
Bakkastaðir, 112 Reykjavík Bakkastaðir Reykjavík
Fífusel, 109 Reykjavík Fífusel Reykjavík
Laugateigur, 105 Reykjavík Laugateigur Reykjavík
Stórikriki, 270 Mosfellsbær Stórikriki Mosfellsbær
Innlent | mbl.is | 7.11.2007 | 11:48

Lögregla á Vestfjörðum leggur hald á fartölvu

Lögreglan á Vestfjörðum hefur lagt hald á fartölvu vegna gruns um að í henni sé að finna ólöglegt myndefni. Í kjölfarið var ungur karlmaður handtekinn og að lokinni yfirheyrslu var honum sleppt. Málið er enn á rannsóknarstigi og mun á næstu dögum fara fram rannsókn á innihaldi og umfangi hins ætlaða ólöglega efnis.

Í tilkynningu frá lögreglunni kemur fram að grunur um vörslu á ólöglegu myndefni vaknaði þegar athugulir nettengdir tölvunotendur urðu þess varir að verið var að bjóða myndefni í gegnum Internetið.

Lögreglan bendir á ákvæði 4. mgr. 210 gr. hegningarlaga þar sem segir:
„Hver sem flytur inn, aflar sér eða öðrum, eða hefur í vörslu sinni ljósmyndir, kvikmyndir eða sambærilega hluti sem sýna börn á kynferðislegan eða klámfenginn hátt skal sæta sektum eða fangelsi allt að 2 árum ef brot er stórfellt.]3) Sömu refsingu varðar að flytja inn eða hafa í vörslu sinni ljósmyndir, kvikmyndir eða sambærilega hluti sem sýna börn í kynferðisathöfnum með dýrum eða nota hluti á klámfenginn hátt.]2)“

Lögreglan á Vestfjörðum vill hvetja alla þá sem upplýsingar geta gefið um vörslu á ólöglegu myndefni að hafa samband í síma lögreglunnar 450 3730, eða á netfang Barnaheilla abending@barnaheill.is

© 2010 Árvakur hf. Öll réttindi áskilin

Fara til baka Til baka

 

Innlent — Fleiri fréttir

Í dag