[ Fara í meginmál | Forsíða | Veftré ]
mobile Fyrir farsíma | RSS þjónusta RSS | Podcast Podcast | Minnka letur Stærð Stækka letur
blog.is

Nýtt á mbl.is

Auglýsingar

Tenglar

Samgöngur

Lottó

Lottó  20.3.2010
11 14 17 22 39 26
Jóker
0 0 8 1 9  
Áskrift á www.lotto.is
Birt án ábyrgðar

Fasteignir:
mest skoðað

Grundarstígur, 101 Reykjavík Grundarstígur Reykjavík
Holtsgata, 101 Reykjavík Holtsgata Reykjavík
Nýbýlavegur, 200 Kópavogur Nýbýlavegur Kópavogur
Álfheimar, 104 Reykjavík Álfheimar Reykjavík
Blásalir, 201 Kópavogur Blásalir Kópavogur
Mávahlíð , 105 Reykjavík Mávahlíð Reykjavík
Ystasel, 109 Reykjavík Ystasel Reykjavík
Vesturtún, 225 Álftanes Vesturtún Álftanes
Eyrarvegur, 600 Akureyri Eyrarvegur Akureyri
Tröllakór, 203 Kópavogur Tröllakór Kópavogur

mbl.is/Kristinn

Innlent | mbl.is | 15.11.2007 | 13:47

Húsrannsókn byggð á upplýsingum frá einstaklingum og fyrirtækjum

Samkeppniseftirlitið hefur í dag framkvæmt húsleit á skrifstofum tveggja smásöluaðila og þriggja aðila í innflutningi og heildsölu á matvöru. Segir stofnunin, að til grundvallar aðgerðunum liggi upplýsingar sem Samkeppniseftirlitinu hafa borist og aflað hafi verið frá einstaklingum og fyrirtækjum í kjölfar fjölmiðlaumfjöllunar um matvörumarkaðinn nú um daginn.

Í fréttatilkynningu 1. nóvember sl. hvatti Samkeppniseftirlitið þá sem teldu sig hafa upplýsingar um brot á samkeppnislögum til þess að koma þeim upplýsingum á framfæri við eftirlitið og hafa allmargir brugðist við þeirri hvatningu, að því er kemur fram í nýrri tilkynningu, sem stofnunin sendi frá sér nú eftir hádegið.

„Rannsókn sú sem nú er hafin beinist einkum að ætluðum brotum á 10. gr. samkeppnislaga, þ.e. hugsanlegu ólögmætu samráði smásöluaðila og birgja. Kemur rannsóknin til viðbótar við aðrar athuganir sem nú standa yfir og áður hafa verið kynntar opinberlega. Samkeppniseftirlitið mun hraða nýhafinni rannsókn eftir því sem kostur er, en ljóst er að athugunin er viðamikil og að nokkurn tíma mun taka að greina þau gögn sem aflað hefur verið.

Rétt er að vekja athygli á því að þýðingu hefur fyrir skjóta úrlausn málsins hvort fyrirtæki eða einstaklingar ákveða að liðsinna eftirlitinu við rannsókn þess. Ef um brot er að ræða getur Samkeppniseftirlitið samkvæmt lögum fallið frá sektarákvörðun hafi fyrirtæki verið fyrst til að láta því í té upplýsingar eða gögn vegna ólögmæts samráðs sem geta leitt til sönnunar á broti.

Einnig er heimilt að lækka sektir ef fyrirtæki liðsinna eftirlitinu með því að veita mikilvæg sönnunargögn. Þá getur Samkeppniseftirlitið ákveðið að kæra ekki til lögreglu hugsanleg brot einstaklinga sem upplýsa um þau og liðsinna við rannsókn. Fyrirtæki og einstaklingar sem hugsanlega hafa tekið þátt í ólögmætu samráði hafa því skýran hag af því að liðsinna eftirlitinu, en það getur á móti leitt til skjótari málsmeðferðar," segir í tilkynningunni frá Samkeppniseftirlitinu.

Á þessu stigi gefur Samkeppniseftirlitið ekki frekari upplýsingar um rannsóknina.

© 2010 Árvakur hf. Öll réttindi áskilin

Fara til baka Til baka

 

Innlent — Fleiri fréttir

Í dag