Bæjarfulltrúi í Reykjanesbæ leitar til umboðsmanns Alþingis

Guðbrandur Einarsson
Guðbrandur Einarsson

Guðbrandur Einarsson bæjarfulltrúi A-listans í Reykjanesbæ hefur leitað álits umboðsmanns Alþingis á vinnubrögðum Árna Sigfússonar bæjarstjóra og meirihluta sjálfstæðismanna við sölu hlutar í Hitaveitu Suðurnesja.

Í bréfi til umboðsmanns rekur Guðbrandur að sala eignarhlutar bæjarins í HS, sem nam 5%, var ekki tekinn fyrir í bæjarráði eða bæjarstjórn þegar salan fór fram, og að sölusamningurinn var ekki undirritaður með fyrirvara um samþykki bæjarráðs eða -stjórnar. Samningurinn hafi fyrst verið lagður fyrir bæjarráð Reykjanesbæjar 15. nóvember, fjórum mánuðum eftir að hann var gerður og þá að kröfu bæjarfulltrúa af A-lista, samkvæmt frétt á vef Samfylkingarinnar.

„Þegar bæjarfulltrúar í Reykjanesbæ fengu að kröfu A-listamanna afhent öll gögn um Hitaveitu Suðurnesja í fórum bæjarfélagsins kom í ljós að í sölusamningnum við Orkuveitu Reykjavíkur voru engir fyrirvarar um samþykki kjörinna fulltrúa. Samningurinn hafði þá hvorki verið lagður fyrir í bæjarráði né bæjarstjórn.

Guðbrandur skýrir umboðsmanni alþingis frá því að þegar spurt var um ástæður þess að samningurinn kom aldrei til afgreiðslu hafi svörin verið þau að hann grundvallaðist á viljayfirlýsingu eiganda Hitaveitu Suðurnesja sem var lögð fyrir bæjarráð 12. júlí og samþykkt þar með atkvæðum Sjálfstæðisflokksins gegn atkvæðum borgarfulltrúa af A-lista.

Guðbrandur hafi gert athugasemd við þessa málsmeðferð á bæjarstjórnarfundi 6. nóvember þar sem í viljayfirlýsingunni sé þess hvergi getið að Reykjanesbær selji OR hlut sinn. Því hefði átt að undirrita þennan samning með fyrirvara um samþykki bæjarráðs og taka hann síðan þar til afgreiðslu.

„Ég tel ljóst af ofangreindu að málsmeðferðarreglur stjórnsýslulaga og bæjarstjórnar Reykjanesbæjar hafi verið brotnar,“ segir Guðbrandur í bréfi sínu til umboðsmanns og biður um álit frá embættinu á þessum gjörningi," að því er segir á vef Samfylkingarinnar.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert