[ Fara í meginmál | Forsíða | Veftré ]
mobile Fyrir farsíma | RSS þjónusta RSS | Podcast Podcast | Minnka letur Stærð Stækka letur
blog.is

Nýtt á mbl.is

Auglýsingar

Tenglar

Samgöngur

Víkingalottó

Víkingalottó 17.3.10
5 6 36 37 38 43
28 41   39
Jóker
5 1 5 1 4  
Áskrift á www.lotto.is
Birt án ábyrgðar

Fasteignir:
mest skoðað

Barónsstígur, 101 Reykjavík Barónsstígur Reykjavík
Sæviðarsund, 104 Reykjavík Sæviðarsund Reykjavík
Spítalastígur, 101 Reykjavík Spítalastígur Reykjavík
Selhólsbraut, 801 Selfoss (dreifbýli) Selhólsbraut Selfoss (dreifbýli)
Arnarheiði, 810 Hveragerði Arnarheiði Hveragerði
Álfhólsvegur, 200 Kópavogur Álfhólsvegur Kópavogur
Bakkastaðir, 112 Reykjavík Bakkastaðir Reykjavík
Fífusel, 109 Reykjavík Fífusel Reykjavík
Laugateigur, 105 Reykjavík Laugateigur Reykjavík
Stórikriki, 270 Mosfellsbær Stórikriki Mosfellsbær
George W. Bush við Hvíta húsið

George W. Bush við Hvíta húsið Reuters

Innlent | mbl.is | 6.12.2007 | 12:50

Skagapiltur pantaði viðtal við Bush

Bloggað um fréttina

Sextán ára piltur á Akranesi hringdi í Hvíta húsið og pantaði símaviðtal við George Bush, forseta Bandaríkjanna. Vífill Atlason komst fyrir nokkru yfir símanúmer í Hvíta húsinu sem ekki er ætlað almenningi. Vífill hringdi í númerið, sagðist vera Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, og pantaði viðtal hjá Bush.

Þegar Vífill hringdi í Hvíta húsið var hann spurður ýmissa spurninga, m.a. um fæðingardag og hvenær hann hefði tekið við embætti, og segist Vífill hafa svarað spurningunum skilmerkilega með hjálp alfræðiorðabókarinnar Wikipediu. Hann fékk á endanum samband við ritara forseta sem fann tíma og stóð til að Bush hringdi í Vífil síðastliðið mánudagskvöld.

Ekkert varð þó af símtalinu því lögregla heimsótti Vífil á mánudaginn og spurði Vífil um málið og meðal annars hvernig hann hefði fengið umrætt símanúmer í hendur.

Varla hefur reynst erfitt fyrir lögreglu að hafa uppi á Vífli því hann gaf upp eigið símanúmer og átti Bush að hringja í það númer.

„Það er greinilega ekki hægt að treysta þeim hjá Hvíta Húsinu fyrir svona upplýsingum því ég ítrekaði að þetta væri leynilegt númer, sem þeir mættu alls ekki láta frá sér," segir Vífill.

Vífill segir aðspurður að ekki hafi staðið til að valda neinu uppnámi í Hvíta húsinu, ef af viðtalinu hefði orðið hugðist hann einfaldlega spjalla við Bandaríkjaforseta og bjóða honum til Íslands.

Hjá skrifstofu forseta Íslands fengust þau svör að skrifstofan hefði ekkert að segja um málið.

Hjá lögreglunni á Akranesi fengust þær upplýsingar að vissulega hefði verið rætt við Vífil. Lögregluembættinu á Akranesi barst erindi frá greiningadeild ríkislögreglustjóra, sem hafði fengið beiðni frá Hvíta húsinu um að kanna málið.

Jóhanna Gestsdóttir, varðstjóri hjá lögreglunni á Akranesi, segir að uppátækið sé varla saknæmt, og efast um að eftirmál verði af því.

Það sem bandarískum yfirvöldum þykir hins vegar forvitnilegast er að komast að því hvar Vífill komst yfir númerið, sem alls ekki á að vera opinbert. Vífill segist hafa haft númerið lengi inni á farsíma sínum og muni ekki lengur hjá hverjum hann hafi fengið það.

© 2010 Árvakur hf. Öll réttindi áskilin

Fara til baka Til baka

 

Innlent — Fleiri fréttir

Í dag
Í gær