

Sturla Jónsson gerir grín að loknum yfirheyrslum lögreglunnar og leikur hættulegan glæpamann sem þarf að dylja andlit sitt. mbl.is/Július
Bílstjórar: „Við höldum áfram"
Bloggað um fréttina
-
Vilbogi Magnús EinarssonHugleysið algert
-
Þorsteinn SiglaugssonMótmæla vondu veðri
-
Björg EyþórsdóttirSegi það nú kannski ekki alveg...
-
Baldur FjölnissonLögreglan stappar stálinu í mótmælabílstjóra og
-
Oddgeir EinarssonHin hliðin á peningnum
-
Halldór Þórðarson/dóritaxiStórhættulegur morðingi !
-
Einar Örn ÆvarssonHagsmunagæsla jaðarhóps
-
Hallgrímur GuðmundssonAuðvitað á að halda áfram.
-
Óskar Helgi HelgasonSTEFÁN EIRÍKSSON ! Boðaðu 63 Alþingismenn; til
-
Stefán Friðrik StefánssonSturla kærður - munu mótmælin halda áfram?
-
Reynir W LordÉg styð ykkur 100%
-
Eyþór Eðvarðsson í Vilniushrekkjusvín eða morðingjar?
-
ÞórðurÍ mál við lögregluna
-
Steinar Immanúel Sörenssonáfram áfram
-
Jón Ingi CæsarssonSmábarnaskóli eða barnaheimili.
-
Ingólfur HarriLjónheppnir bílstjórar
-
Björgvin GuðmundssonBílstjórar halda áfram aðgerðum
-
Jóhann Már SigurbjörnssonKæra Reykjavíkurborg vegna sömu brota ??
-
Sigurður HrellirTalsmaður svarar ekki!
-
Heimir L FjeldstedHættið þessum barnaskap.
-
PúkinnEiginhagsmunamótmæli atvinnubílstjóra
-
Ella mannvera Ronja Chihuahua og Lilo Boxer/LabradorAð láta í sér heyra
-
BLOGGERjá sæll
-
Þráinn SigvaldasonSirkus
„Þeir sögðu að ég væri stórhættulegur morðingi en ég svaraði engu því ég hef ekki gert nokkurn skapaðan hlut af mér," sagði Sturla Jónsson talsmaður atvinnubílstjóra við fréttamenn eftir yfirheyrslur hjá lögreglu höfuðborgarsvæðisins fyrir stundu.
Við höldum áfram!
Félagar hans hrópuðu hvatningarorð og að þeir myndu halda áfram aðgerðum.
Sturla mætti með lögmanni sínum til yfirheyrslu í morgun vegna aðgerða og mótmæla atvinnubílstjóra að undanförnu.
Varðandi aðgerðir bílstjóra og spurningar lögreglu um þær sagði Sturla: „Ég er náttúrulega bara vegfarandi hérna sem lendir í umferðaröngþveiti og verð bara að berjast fyrir mínu sjálfur," sagði Sturla.
Sturla sagði að lögreglan hefði farið í gegnum lista af spurningum en að hann hafi ekki svarað neinu enda bæri honum ekki skylda til þess.
Aðspurður hvort bílstjórar ætluðu að halda áfram aðgerðum svaraði hann: „Þið heyrið í strákunum, þeir eru meira en fílefldir bara. Það lítur út fyrir að menn eflist bara við það að verða teknir í yfirheyrslur og það segir okkur að þetta er bara lögregluríki"
Til baka








Senda inn efni


