Ferðir falla niður í 5-9 daga á ári

Vestmannaferjan Herjólfur
Vestmannaferjan Herjólfur mbl.is

Sigurður Grétarsson, forstöðumaður hafnarsviðs Siglingastofnunar, segir reiknað með að fella þurfi niður ferðir Herjólfs 5-9 daga á ári vegna veðurs eftir að Landeyjarhöfn hafi verið tekin í notkun. Truflun geti orðið á siglingum 10-15 daga á ári. Þetta sé svipað og er í dag þegar siglt er til Þorlákshafnar.

Sigurður segir að áður en rannsóknir á þessu hafnarstæði hófust hafi verið efasemdir innan Siglingastofnunar um að hægt væri að gera höfn á Landeyjarsandi. Ítarlegar rannsóknir hafi hins leitt í ljós að þetta sé vel framkvæmanlegt.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert