[ Fara í meginmál | Forsíða | Veftré ]
mobile Fyrir farsíma | RSS þjónusta RSS | Podcast Podcast | Minnka letur Stærð Stækka letur
blog.is

Nýtt á mbl.is

Auglýsingar

Tenglar

Samgöngur

Lottó

Lottó  20.3.2010
11 14 17 22 39 26
Jóker
0 0 8 1 9  
Áskrift á www.lotto.is
Birt án ábyrgðar

Fasteignir:
mest skoðað

Grundarstígur, 101 Reykjavík Grundarstígur Reykjavík
Holtsgata, 101 Reykjavík Holtsgata Reykjavík
Álfheimar, 104 Reykjavík Álfheimar Reykjavík
Nýbýlavegur, 200 Kópavogur Nýbýlavegur Kópavogur
Álfheimar, 104 Reykjavík Álfheimar Reykjavík
Blásalir, 201 Kópavogur Blásalir Kópavogur
Mávahlíð , 105 Reykjavík Mávahlíð Reykjavík
Ystasel, 109 Reykjavík Ystasel Reykjavík
Vesturtún, 225 Álftanes Vesturtún Álftanes
Eyrarvegur, 600 Akureyri Eyrarvegur Akureyri

mbl.is/RAX

Innlent | mbl.is | 10.5.2008 | 09:53

Mikið að gera hjá björgunarsveitum á Vestfjörðum í nótt

Í nógu var að snúast hjá björgunarsveitum á Vestfjörðum í nótt að sögn lögreglunnar á Ísafirði.  Ófært var um Steingrímsfjarðarheiði og var hún lokuð í nótt en þrátt fyrir lokunina fóru nokkrir á heiðina og lentu í vandræðum vegna blindrar færðar og þurftu á aðstoð að halda.

Að sögn lögreglu festust margir sem voru á leið vestur í Hólmavík og var öll gistiaðstaða í bænum uppurin, og opnað var félagsheimili til þess að veita fólki gistingu.

Þá barst lögreglu tilkynning klukkan hálf eitt í nótt um þýskt par sem festist á Ennishálsi, heiðinni milli Hólmavíkur og Brúar.  Að sögn lögreglu voru þau á illa búnum bílaleigubíl en fengu aðstoð björgunarsveitar við að komast niður af heiðinni.

Björgunarsveitin Lómfell á Barðaströnd var ræst út í nótt við að aðstoða flutningabíla á Klettshálsi, sem lentu þar í blindu og skafrenningi.  Þá barst lögreglu tilkynning um klukkan 2:30 í nótt að óttast væri um fjórar bifreiðar sem væru á leið frá Flókalundi til Ísafjarðar.  Ekki hafði heyrst frá ökumönnum þeirra í langan tíma og var björgunarsveitin Dýri frá Þingeyri ræst út. Þeir fundu bílana um klukkustund síðar við Hrafnseyri en þeir voru þá komnir niður af Dynjandaheiði.  Höfðu þeir lent í vandræðum á heiðinni þar sem færð var blind og mikill skafrenningur.

© 2010 Árvakur hf. Öll réttindi áskilin

Fara til baka Til baka

 

Innlent — Fleiri fréttir

Í dag
Í gær