Slagsmál á Skagaströnd

mbl.is/Július

Til slagsmála kom á milli tveggja manna á Skagaströnd á sjötta tímanum í morgun að sögn lögreglunnar á Blönduósi.  Að sögn lögreglu höfðu mennirnir slegist í einhvern tíma þegar annar þeirra tók upp hníf og skar hinn.  Að sögn lögreglu særðist maðurinn á hendi en ekki er talið að um alvarleg meiðsl hafi verið að ræða, en hann fór sjálfur á slysadeild til aðhlynningar.  Sá sem beitti hnífnum var handtekinn af lögreglu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert