12 mánaða fangelsi fyrir manndráp af gáleysi

Héraðsdómur Reykjaness hefur dæmt karlmann á þrítugsaldri í 12 mánaða fangelsi fyrir að valda umferðarslysi með vítaverðu gáleysi en þrítugur karlmaður og 5 ára gömul stúlka létu lífið í slysinu. Maðurinn var einnig sviptur ökuréttindum í fjögur ár.

Ekki þótti ástæða til að skilorðsbinda refsinguna, og var m.a. litið til þess að á tímabilinu 27. febrúar 2007 til 27. júlí 2007 var maðurinn níu sinnum staðinn að því að aka yfir leyfilegum hámarkshraða. Umræddu umferðarslysi olli maðurinn hins vegar 2. desember 2006.

Um miðjan dag, laugardaginn 2. desember 2006, barst lögreglu tilkynnning um slysið. Það átti sér stað á Suðurlandsvegi á Sandskeiði. Maðurinn sem sakfelldur var í máli þessu ók bifreið sinni og var í henni einn farþegi. Hann ætlaði sér að taka fram úr vörubifreið í Draugahlíðarbrekkunni. Bílstjóri vörubifreiðarinnar lýsir atvikinu svo í dómnum: „Segir [bílstjórinn] að hann hefði séð strax að það væri ekki séns að mætast þarna. Þá hefði hann séð að ökumaður á [bíl ákærða] beygði ákveðið til vinstri og greinilega ætlað að stefna út af veginum, sennilega til að reyna að koma í veg fyrir árekstur. Hefði vinstra framhorn verið komið um meter út fyrir veginn er árekstur varð. Hefði hann séð hægra framhorn bílanna skella saman."

Í bílnum sem kom úr gangstæðri átt var faðir með tvö börn sín. Stúlka fædd árið 2001 lét lífið og drengur fæddur 1998 hlaut brot á lendhryggjarlið og lömun á fótum. Ökumaðurinn og faðir barnanna rifbrotnaði og marðist á brjóstkassa, kviðvegg og hné. Farþegi í bíl með ákærða í málinu lést einnig.

Sá bifreiðina koma á móti

Maðurinn skýrði svo frá fyrir dómi að hann ekið á eftir vörubifreið, slabb hafi verið á veginum og gusast frá vörubifreiðinni og upp á framrúðuna. Hann hafi lítið séð út. Vegna þessara aðstæðna hafi hafi það skyndilega gerst að bifreiðin hafi ekki látið að stjórn, hún hafi sveigst til vinstri og yfir á hina akreinina. Maðurinn hafi séð bifreið koma á móti en átti erfitt með að meta fjarlægðina þar sem aðeins eitt framhljós hennar logaði. Ekki hafi tekist að koma í veg fyrir árekstur. Í árekstrinum úlnliðsbrotnaði hann og skrámaðist í andliti.

Í vettvangsskýrslu lögreglunnar kemur fram að vegurinn hafi verið blautur en engin hálka merkjanleg. Það var skýjað en veður milt og vindur hægur. Við málarekstur kom einnig fram að bifreið mannsins hafi verið ekið á í það minnsta 110 km hraða.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert