Marorka tilnefnd til umhverfisverðlauna

Frá þingi Norðurlandaráðs í Ósló á síðasta ári.
Frá þingi Norðurlandaráðs í Ósló á síðasta ári. norden.org/Magnus Fröderberg

Marorka er tilefnd til  umhverfisverðlauna Norðurlandaráðs árið 2008. Marorka vinnur að þróun tölvukerfa sem lágmarka olíunotkun skipa og draga þar með úr mengun og eldsneytiskostnaði.

Alls eru 37 einstaklingar og fyrirtæki tilnefnd til verðlaunanna, m.a.   dekkjaframleiðendurnir Nokian Tires í Finnlandi og danska rakarastofukeðjan Zenz, AGA Gas í Svíþjóð, Norðmaðurinn Finn Larsen, sem fann upp Multishower sturtuhausinn, orku- og umhverfisvæna gistiheimilið Bomans Gästhem á Álandi.

Flestar tilnefningar koma frá Svíþjóð þetta árið, eða sextán. Níu koma frá Finnlandi, sjö frá Danmörku, þrjár frá Noregi og ein frá Íslandi og Álandseyjum. Engar tilnefningar bárust í þetta sinn frá Færeyjum og Grænlandi.

Þema náttúru- og umhverfisverðlaunanna Norðurlandaráðs árið 2008 er leiðir til að draga úr hefðbundinni eldsneytisnotkun með betri verkfærum. Verðlaunin verða veitt norrænum vöruframleiðanda, uppfinningu eða þjónustu sem stuðlað hefur að vistvænni orkunotkun. Varan, uppfinningin eða þjónustan á að geta nýst öllum Norðurlandabúum og hafa merkjanleg áhrif í umhverfisvernd. Allt frá stórum kerfum og einstakra hluta kemur til greina.

Nokkrir þeirra sem tilnefndir eru, komast í aðra umferð í haust. Þeir sem komast í úrslit verða kynntir í ágúst-september og dómnefnd tekur síðan ákvörðun á fundi í Svíþjóð þann 8. október. Tilkynnt verður um verðlaunahafann á blaðamannfundi í lok október þegar Norðurlandaráðsþing hefst í Helsinki.

Þetta er í fjórtánda sinn sem norrænu náttúru- og umhverfisverðlaunin eru veitt. Verðlaunafé nemur 350.000 dönskum krónum. Þema umhverfisverðlaunanna í fyrra var sjálfbært borgarumhverfi og komu verðlaunin þá í hlut danska sveitarfélagsins Albertslund.  
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert