Ísbjörninn að Hrauni dauður

Ísbjörninn var drepinn við Hraun í kvöld.
Ísbjörninn var drepinn við Hraun í kvöld. mbl.is/Skapti

Ísbjörninn sem gekk á land að Hrauni á Skaga í gær var drepinn nú á sjöunda tímanum að sögn Stefáns Vagns Stefánssonar, yfirlögregluþjóns á Sauðárkróki. Segir Stefán að dýrið hafi tekið á rás í átt til sjávar „og því var ekki annað í stöðunni en að skjóta það, því miður."

Að sögn Stefáns virðist sem danski sérfræðingurinn, Carsten Grøndahl, sem átti að skjóta deyfilyfinu í ísbjörninn hafi ekki náð að skjóta deyfilyfinu þaðan sem hann var staðsettur.

 Ekki tókst að komast nógu nálægt honum til að hægt væri að skjóta svefnlyfi í hann. Um var að ræða kvendýr sem líklegast var sært á báðum framfótum og horað og væntanlega ekki þolað svæfingu, samkvæmt upplýsingum frá Umhverfisstofnun.

Þyrla Landhelgisgæslunnar flaug í dag með Carsten norður á Skaga en farið var með búr til að flytja dýrið landleiðina frá Akureyri. Varðskip Landhelgisgæslunnar átti síðan að flytja dýrið frá landinu en vonir stóðu til að hægt væri að fara með það til Grænlands.

Vissum að allt yrði að ganga upp

Þórunn Sveinbjarnardóttir, umhverfisráðherra, er stödd á Skaga, þar sem hún fylgdist með björgunartilraunum. „Við vissum að allt þyrfti að ganga upp til þess að hægt yrði að bjarga ísbirninum. Það tókst því miður ekki, sagði Þórunn í samtali við mbl.is. 

Ísbjörninn að Hrauni
Ísbjörninn að Hrauni mbl.is/Rax
Stefán Vagn Stefánsson og Þórunn Sveinbjarnardóttir ræddu við fjölmiðla í …
Stefán Vagn Stefánsson og Þórunn Sveinbjarnardóttir ræddu við fjölmiðla í kvöld mbl.is/Skapti
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert