Strætó fækkar vögnunum um 32
Bloggað um fréttina
-
Gísli ReynissonEinn hluti sparnaðar
-
Sigrún JónaOg eru þá bara allir borgarbúar heima og enginn
-
Bogi JónssonSpara sig blanka
-
Katrín Ósk AdamsdóttirEkki að dragast saman, það sem af er þessu sumri.
-
Vilberg HelgasonEr strætó ekki fáránlega dýr kostur
-
Úlfhildur FlosadóttirNámsmennirnir
-
Snorri Örn ArnaldssonEkki endilega hagkvæmara að taka strætó
-
Berglind SteinsdóttirEggið og hænan
-
Einar Oddur ÓlafssonStrætó
„Farþegafjöldi hefur dregist saman um 50% yfir sumarið árum saman. Ekki aðeins vegna skólaslita heldur einnig vegna þess að sumarleyfi eru tiltölulega löng hjá vinnandi fólki,“ segir Einar Kristjánsson, sviðsstjóri þjónustusviðs hjá Strætó bs.
Fyrirtækið tók nýlega 32 strætisvagna af númerum og breytti ferðatíðni leiða 1, 2, 3, 4 og 6 og 11, 12, 14 og 15 úr 15 í 30 mínútur.
Er sú aðgerð hluti af sumaráætlun fyrirtækisins. Síðasta sumar var slík áætlun fyrst tekin upp og vögnum fækkað jafnt hjá undirverktaka og fyrirtækinu sjálfu en þeir samningar sem Strætó hefur við verktaka núna eru þannig að það er hagkvæmara að fyrirtækið beri þungann af fækkuninni, að sögn Einars.
Hann segir ástæðurnar þríþættar. Í fyrsta lagi fækkun farþega og í öðru lagi skili fækkun vagna 80-90 milljóna króna sparnaði sem er nýttur til rekstrarins að vetri til. Þriðja skýringin felist í því að erfitt sé að ráða sumarstarfsfólk með tilskilin réttindi, þ.e. meirapróf.
Nánar í Morgunblaðinu. Smelltu hér til að gerast áskrifandi.
Til baka








Senda inn efni



