Meira góss og meira vín tollfrjálst með nýrri reglugerð

mbl.is/Sverrir

Ferðalangar munu nú geta keypt sér meira af tollfrjálsum varningi á ferðalögum sínum því samkvæmt nýrri reglugerð fjármálaráðherra hækkar hámarksverðmæti tollfrjáls varnings í dag úr 46 þúsund krónum í 65 þúsund. Hver hlutur má ekki kosta meira en 32.500 kr. í stað 23.000 kr. áður. Þetta er ríflega fjörutíu prósenta hækkun, en sex ár eru síðan þessari upphæð var síðast breytt.

Í tilkynningu frá fjármálaráðuneytinu þar sem gildistaka nýrrar reglugerðar um þetta efni er kynnt kemur jafnframt fram að tollfrjálsar heimildir skipverja og flugáhafna aukist einnig, sú upphæð fari úr 17.000 í 24.000 kr. Einnig verður ferðamönnum heimilt að hafa meðferðis tollfrjálst þrjá lítra af léttvíni í stað 2,25 lítra í gildandi reglugerð. Þetta þýðir að ferðalangar geta tekið með sér fjórar flöskur af léttvíni í stað þriggja áður. Kjósi þeir að hafa meðferðis sterkt áfengi verður þeim heimilt að hafa meðferðis tollfrjálst einn og hálfan lítra af léttvíni í stað eins lítra nú .
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert