Gróðurlömpum stolið í Hveragerði

Brotist var inn í gróðurhús í Hveragerði síðustu nótt og teknir sjö nýir og óuppsettir gróðurlampar. Farið var inn með því að brjóta rúðu. Nemur tjónið á annað hundrað þúsund. Málið er í rannsókn.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert