[ Fara í meginmál | Forsíða | Veftré ]
mobile Fyrir farsíma | RSS þjónusta RSS | Podcast Podcast | Minnka letur Stærð Stækka letur
blog.is

Nýtt á mbl.is

Auglýsingar

Tenglar

Samgöngur

Lottó

Lottó  20.3.2010
11 14 17 22 39 26
Jóker
0 0 8 1 9  
Áskrift á www.lotto.is
Birt án ábyrgðar

Fasteignir:
mest skoðað

Skipholt, 105 Reykjavík Skipholt Reykjavík
Kársnesbraut, 200 Kópavogur Kársnesbraut Kópavogur
Drápuhlíð, 105 Reykjavík Drápuhlíð Reykjavík
Ástún, 200 Kópavogur Ástún Kópavogur
Blásalir, 201 Kópavogur Blásalir Kópavogur
Grænahlíð, 105 Reykjavík Grænahlíð Reykjavík
Mávahlíð , 105 Reykjavík Mávahlíð Reykjavík
Álfaskeið, 220 Hafnarfjörður Álfaskeið Hafnarfjörður
Sólbaðsstofa, 110 Reykjavík Sólbaðsstofa Reykjavík
Ystasel, 109 Reykjavík Ystasel Reykjavík
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir heldur út til Kína.

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir heldur út til Kína. Guðmundur Rúnar Guðmundsson

Innlent | mbl.is | 22.8.2008 | 14:12

Þorgerður Katrín: „Ég fer út að fagna með strákunum"

Eftir Dag Gunnarsson, dagur@mbl.is

„Þetta er það stærsta sem gerst hefur í íslenskri íþróttasögu síðan Vilhjálmur hreppti silfrið," sagði Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir mennta- og íþróttamálaráðherra sem var klökk í viðtali við mbl.is.

 „Ég er ánægð, stolt og ég er hrærð og mig langar að taka utan um þá alla og segja bara takk fyrir það sem þið eruð að gera fyrir okkur öll," sagði Þorgerður Katrín sem staðfesti að hún færi út til Kína í fyrramálið til að styðja við handboltaliðið.

 „Þeir eru farnir í gullið og þetta er eitthvað sem enginn má láta fram hjá sér fara sem yfirmaður íþróttamála. Það er bara þannig," sagði Þorgerður Katrín.

Ráðherra boðar þjóðhátíð 

„Ég verð starfandi forsætisráðherra þegar drengirnir koma heim í næstu viku og ég mun sjá til þess að ríkisstjórnin haldi stóra og mikla móttöku fyrir  strákana," sagði Þorgerður Katrín sem boðaði hreinlega þjóðhátíð og sagði að nú nokkrum mínútum eftir að leiknum lauk að farið yrði í þá vinnu að skipuleggja þau hátíðahöld.

 „Við erum komin með silfur, spáðu í það. Ég hef bara mikla trú að á að við vinnum þetta. Drengirnir hafa einhverja ótrúlega innri stóíska ró og þó að allir séu búnir að tala um það að Frakkarnir séu langbestir þá hef ég eigi að síður mikla trú á okkar drengjum," sagði Þorgerður Katrín.

 „Þetta er töfraliðið okkar"

 „Ég er reynslubolti í þessum heimi og ég hef verið á milljón mótum, Evrópu-, heimsmeistara- og ólympíumótum og ég hef aldrei séð svona gott lið það eru einhverjir töfrar yfir þessu liði, þetta er töfraliðið okkar," bætti Þorgerður Katrín við að lokum.

© 2010 Árvakur hf. Öll réttindi áskilin

Fara til baka Til baka

 

Innlent — Fleiri fréttir

Í dag