Lyklabörn vegna manneklunnar

Enn bíða tæplega 1.700 börn eftir plássi á frístundaheimilum ÍTR
Enn bíða tæplega 1.700 börn eftir plássi á frístundaheimilum ÍTR mbl.is/Kristinn Ingvarsson

„Fyrsta skóladaginn var mér tilkynnt það að ekki væri hægt að taka við drengnum mínum og fékk því engan fyrirvara um að bjarga þessu öðruvísi,“ segir móðir sjö ára drengs er sótti um pláss á frístundaheimilinu Tígrisbæ við Rimaskóla. Þar hefur helmingi aðstöðunnar nú verið lokað vegna tilmæla heilbrigðiseftirlitsins. „Ég hef engan tíma til að gera aðrar ráðstafanir, börn á þessum aldri geta ekki verið ein heima,“ segir hún og bætir við að mannekla á frístundaheimilum stuðli að því að eldri börn verði hreinlega að fá lykil um hálsinn og sjái um sig sjálf.

Soffía Pálsdóttir, forstöðumaður æskulýðssviðs ÍTR, segir að viðgerðirnar á frístundaheimilinu orsaki ekki plássleysið. „Tvær af fjórum stofum verða teknar til viðgerða í senn og mun þetta taka samtals um fjórar vikur,“ segir hún og bætir við að Rimaskóli muni aðstoða við að finna lausn á húsnæðisvandanum. „Enn sem komið er getum við ekki sagt að biðlistarnir í Tígrisbæ orsakist af húsnæðisvanda,“ segir hún og bætir við að aðalvandinn snúi að því að manna störfin.

„Það eru tæplega 50 börn sem bíða eftir því að komast að á frístundaheimilið Tígrisbæ,“ segir Soffía en tekur fram að börn sem hefja skólagöngu í haust og börn sem búa við sérstakar aðstæður, svo fremi sem sótt hafi verið um fyrir þau fyrir 1. apríl síðastliðinn, gangi fyrir.

Í skólabyrjun hafa 1.200 börn hafið dvöl á frístundaheimilum ÍTR en enn bíða tæplega 1.700 börn eftir að komast að. Um 200 starfsmenn vantar til starfa. Launakjör fyrir ófaglærðan starfsmann er um 160.00 kr.
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert