Kristín Helga fékk barnabókaverðlaun Vestnorræna ráðsins

Kristín Helga Gunnarsdóttir ásamt Karli V. Matthíassyni, formanni Vestnorræna ráðsins …
Kristín Helga Gunnarsdóttir ásamt Karli V. Matthíassyni, formanni Vestnorræna ráðsins og Silju Aðalsteinsdóttur, sem situr í dómnefnd verðlaunanna.

Bókin Draugaslóð eftir Kristínu Helgu Gunnarsdóttur hlaut í dag  Barna- og unglingbókaverðlaun Vestnorræna ráðsins.  Um er að ræða alþjóðleg verðlaun, sem eru veitt annað hvert ár og stendur því valið milli bóka sem gefnar hafa verið út á tveggja ára tímabili í þremur löndum: Íslandi, Færeyjum og Grænlandi. Verðlaunin nema 1 milljón króna.

Í rökstuðningi dómnefndar segir meðal annars að bókin sé kærkomin fyrir unglinga á öllum aldri, sagan sé full af mótsetningum þar sem draumur og veruleiki skarist áþreifanlega en samspil þeirra hjálpar til við að leysa leyndardóminn í bókinni.  Dómnefndin leggur jafnframt áherslu á að bókin taki fyrir hversdagsleg málefni, svo sem vanda einstæðra foreldra og barna þeirra. 

Dómnefndin er einkar hrifin af því hvernig Kristín Helga Gunnarsdóttir fléttar íslenskan þjóðsagnaarf fimlega inn í söguna, grefur djúpt í gamlar sagnir og skapar skáldsögu sem styðst við sagnirnar og þá staði sem sögurnar eru tengdar. Segir dómnefndin að Draugaslóð sé auðug saga af líflegum og sterkum persónum sem lesendur trúa á, stíllinn leikandi og fagmannlegur, tilgerðarlaus en þó ávallt fallegur.

Þetta er í fjórða skipti sem verðlaunin eru veitt en þeim er úthlutað annað hvert ár.  Dómnefnd barnabókaverðlaunanna skipaði Oddfríður Marni Rasmussen frá Færeyjum, Vera Lise Rosing Olsen frá Grænlandi og Silja Aðalsteinsdóttir frá Íslandi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert