Mjög óvinveitt aðgerð
Bloggað um fréttina
-
Súsanna SvavarsdóttirAfneitun
-
Sigurveig EysteinsdóttirHvað eru allir þessir erlendu fréttamenn að gera
-
Magnús Helgi BjörgvinssonSvona líta Bretar á þetta í kvöld
-
Hólmdís HjartardóttirNú þarf ég lífverði!
-
Björgvin GuðmundssonGeir: Bretar meðhöndla Íslendinga eins og
-
Axel Jóhann HallgrímssonYes Darling, yes please
-
Emil Örn KristjánssonÞetta er til háborinnar skammar!
-
Sigurjón SveinssonStríð hafa hafist af minna tilefni
-
Salvör Kristjana GissurardóttirTerroristaveiðar Gordon Brown
-
Lilja Hrönn HelgadóttirÉg reyni.
-
Björn FinnbogasonTERRORISTI!
-
Ragnar BorgþórsFréttamanna skandall !
-
DunniNorski fjármálaráðherrann ætlar að krefjast svara
-
Jóhann Már SigurbjörnssonEiga stjórnendur að halda áfram ?
-
Róbert TómassonHryðjuverka ríkið Ísland
-
Eyþór ArnaldsVafasöm aðgerð Breta
-
Þorsteinn GunnarssonGeir... hættu að tala íslensku
-
Gestur GuðjónssonÉg ákalla Samfylkinguna
-
Smári Jökull JónssonHalda framsóknarmenn í alvörunni að þeir séu
-
Guðjón Sigþór JenssonFrjálsleg túlkun breskra stjórnvalda
-
Ásgrímur HartmannssonÞorskastríð aftur...
-
maddamanGríðarleg vonbrigði...
-
Hjörtur J. GuðmundssonEru hugsanlega forsendur fyrir því kæra brezk
Geir H. Haarde, forsætisráðherra, sagði á blaðamannafundi, að íslensk stjórnvöld væru mjög óánægð og hneyksluð að bresk yfirvöld skyldu í gær beita Íslendinga ákvæðum í sérstökum lögum um varnir gegn hryðjuverkastarfsemi. Þetta væri í raun mjög óvinveitt aðgerð.
Fram kom í gær að bresk stjórnvöld hefðu beitt umræddu lagaákvæði til að frysta eignir Landsbankans í Bretlandi.
Geir sagðist hafa rætt við Alistair Darling, fjármálaráðherra Bretlands, í dag og komið þessum sjónarmiðum á framfæri. Hefði Darling heitið því í símtalinu, að gefin yrðu fyrirmæli um nauðsynlegar ráðstafanir til að tryggja að öll eðlileg venjuleg viðskipti milli landanna geti farið fram eins og ekkert hafi í skorist. Hefur Darling staðfest þetta bréflega.
Þá féllst Darling á að senda hingað til lands sendinefnd til að ræða við íslensk stjórnvöld og bregða ljósi á máli. Geir sagði að Árni M. Mathiesen, fjármálaráðherra, muni hitta Darling á ársfundi Alþjóðabankans í Washington síðar í vikunni.
Geir sagðist hafa minnt Darling á að mjög mikilvægt væri að viðskipti íslenskra fyrirtækja við Bretland geti gengið eðlilega fyrir sig. Íslendingar væru með starfsemi í Bretlandi þar sem 100 þúsund manns starfa, aðallega Bretar.
Bæði Geir og Björgvin G. Sigurðsson, viðskiptaráðherra, sögðu að það hefðu orðið gríðarleg vonbrigði þegar Kaupþing varð að játa sig sigrað í gærkvöldi og óska eftir inngripum Fjármálaeftirlitsins í rekstur bankans.
Til baka








Senda inn efni



