Gjaldeyrir auglýstur í smáauglýsingunum

Gjaldeyrir er nú auglýstur í smáauglýsingunum á mbl.is.
Gjaldeyrir er nú auglýstur í smáauglýsingunum á mbl.is. mbl.is

Í tveimur smáauglýsingum á mbl.is er gjaldeyrir auglýstur til sölu í dag. Annar seljandinn vill tilboð í 500 Bandaríkjadali og hinn setur upp fast verð sem er 200 krónur dalurinn og 300 krónur fyrir evrur.

„Ég keypti smá gjaldeyri þegar þetta fór allt í hönk og ég átti von á að þurfa að nota hann en nú kemur í ljós að ég þarf ekki á honum að halda," sagði viðmælandi mbl.is sem ekki vildi láta nafns síns getið er hann var inntur eftir ástæðunni fyrir því að hann er aflögufær með gjaldeyri.

Hann sagðist hafa um eitt þúsund Bandaríkjadali til sölu en að eftirspurnin hafi ekkert verið neitt fram úr hófi mikil.

Það er kannski tímanna tákn að á sömu síðu er auglýstur peningaskápur með tölvulás á 40 þúsund krónur.

Auglýsingarnar á netinu.

Ásókn í öryggishólf hefur aukist.
Ásókn í öryggishólf hefur aukist.
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert