Þjóðin í gíslingu Sjálfstæðisflokksins
Bloggað um fréttina
-
Páll VilhjálmssonVerkalýðshreyfing í taumi útrásarliðsins
-
Guðmundur Andri SkúlasonDoddson/Haarde-Syndrome...
-
Guðbjörn GuðbjörnssonSterkt til orða tekið eða hvað?
-
Jóhannes RagnarssonESB-talíbanarnir innan samtaka launafólks
-
Guðmundur BergkvistUm fagleg vinnubrögð stjórnvalda
-
Guðjón PetersenHvar er Framsókn?
-
Björn HeiðdalLandráðamenn og bankaræningjar!
-
Sigurveig EysteinsdóttirJá já... förum bara í kosningar og allir kjósa
-
Sigurður JónssonEr vinstri stjórn lausn á vandanum ?
-
FrikkinnÞarf að ræða það frekar ?
-
S i g u r ð u r SigurðarsonBull, vitleysa og póitískur hávaði í Skúla
-
Bjarni KjartanssonÞað eru nú ekki nein helgirit, þó svo þessi
-
Flosi KristjánssonHver ER peningamálastefnan?
-
Gunnar Th. GunnarssonBarnaleg taktík
-
Hlini Melsteð JóngeirssonÍ skjóli samfylkingarinnar
-
Guðl. Gauti JónssonSjálfstæðisfokkinn burt
-
Guðrún Jónína MagnúsdóttirHaltu kjafti hlýddu og vertu góður
-
Sigríður Laufey EinarsdóttirÞjóðin í gíslingu atvinnulífs- og verkalýðssamtaka
-
Torfi Kristján StefánssonÞjóðin í gíslingu Seðlabankans ...
-
Markús frá DjúpalækGlöggt er gests augað
-
Hafsteinn Viðar ÁsgeirssonÞað verður ekki orðað betur.
-
Óðinn ÞórissonSkrítin fyrirsögn
-
Jón FinnbogasonEinar Már segir þetta best.
-
Hallur MagnússonTvær ljóstýrur í svartnætti Sjálfstæðisflokksins
-
Sigurður HrellirVið erum ekki hross!
-
Ólafur H. GuðgeirssonUppreisn á Íslandi?
-
Theodór MagnússonFlottur Skúli
-
Arnar Júlíussonspyr sá sem ekki veit...
„Það vekur undrun að leiðtogar Sjálfstæðisflokksins, sem fyrst og fremst bera ábyrgð á þeirri peningamálastefnu sem komið hefur þjóðinni á vonarvöl, skulu enn þvælast fyrir skynsamlegum lausnum, á erfiðri leið út úr vandanum. Þeir dæla olíu á þann eld sem þeir segjast vera að slökkva og halda þjóðinni í gíslingu flokksins á meðan,“ segir Skúli Thoroddsen, framkvæmdastjóri Starfsgreinasambands Íslands.
Skúli segir í pistli á heimasíðu Starfsgreinasambandsins að hvert sem litið er, hvort heldur til Samtaka atvinnulífsins, Viðskiptaráðs Íslands eða ársfundar Alþýðusambands Íslands, sé krafan um aðildarviðræður við ESB og hugsanlega inngöngu landsins í sambandið á dagskrá.
Endurskoðun peningamálstefnunnar þoli að sama skapi enga bið og sé þeim mun brýnni í þeim efnahagslegu hamförum sem nú ríða á þjóðinni.
„Þessir aðilar eru allir sammála um, að liggi fyrir afstaða eða ákvörðun að hefja umsóknarferli að ESB-aðild, sé það til þess fallið að lina þær efnahagslegu þjáningar einstaklinga, heimila og fyrirtækja sem óhjákvæmilega verða á næstunni. Endurreisn efnahagslífsins yrði kvalaminni,“ segir Skúli Thoroddsen og bæitr við að Samfylkingin sé duglaus í málinu.
„Samfylkingin, því miður, virðist ekki hafa dug til að ryðja þjóðinni braut úr gíslatökunni þrátt fyrir skýra stefnu í Evrópumálunum. Hin pólitíska stefnumörkun sem hrópað er eftir, bæði af aðilum vinnumarkaðarins, Verslunarráðinu og fólkinu í landinu, situr á hakanum,“ segir framkvæmdastjóri Starfsgreinasambandsins.
Til baka








Senda inn efni



