63 sagt upp á Akranesi

Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness
Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness mbl.is/SteinarH

Skrifstofu Verkalýðsfélags Akraness hafa borist tilkynningar um uppsagnir 63 einstaklinga í bænum í mánuðinum. Rúmlega 20 uppsagnir bættust við í gær og í dag. Formaður Verkalýðsfélags Akraness segir ringulreið ríkja á vinnumarkaði.

„Íslenskir launþegar vita vart hvaðan á sig stendur veðrið og ríkir ótti og angist víða í þjóðfélaginu vegna þeirra uppsagna sem nú dynja á landsmönnum,“ segir vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness á heimasíðu félagsins.

Hann sagðist í vikunni óttast að fleiri uppsagnir myndu líta dagsins ljós áður en mánuðurinn yrði allur, en á miðvikudaginn sl. var búið að tilkynna 42 einstaklingum um uppsögn í vikunni hér á Akranesi.

„Í dag er þessi tala því miður komin upp í 63 einstaklinga. Sem dæmi þá þurfti fyrirtæki sem tilkynnti á miðvikudaginn um uppsagnir á 13 starfsmönnum að segja upp 9 til viðbótar í dag. Með öðrum orðum þá ríkir algjört panik hjá atvinnurekendum vegna þess ástands sem ríkir í efnahagslífi þjóðarinnar,“ segir Vilhjálmur birgisson.

Hann hvetur atvinnurekendur til að virða þær leikreglur og kjarasamninga sem gilda á íslenskum vinnumarkaði þegar staðið er að uppsögnum og breytingu á vinnutilhögun. Hann segir dæmi um að fyrirtæki hafi ætlað að segja upp núverandi vaktakerfi og setja upp nýtt vaktakerfi með einungis nokkurra daga fyrirvara, þótt kveðið sé á um að slíkt sé ekki hægt að gera með svo stuttum fyrirvara.

„Stjórn Verkalýðsfélags Akraness vill segja við ráðamenn þessarar þjóðar, vaknið, því íslenskum fyrirtækjum, launþegum og heimilum er að blæða út.  Stjórn félagsins vill ítreka að ríkisstjórn Íslands verður að koma fyrirtækjum, launþegum og heimilum landsins til hjálpar og það tafarlaust og það aðgerða- og úrræðaleysi sem blasað hefur við þjóðinni að undanförnu verður að heyra sögunni til,“ skrifar Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert