[ Fara í meginmál | Forsíða | Veftré ]
mobile Fyrir farsíma | RSS þjónusta RSS | Podcast Podcast | Minnka letur Stærð Stækka letur
blog.is

Nýtt á mbl.is

Auglýsingar

Tenglar

Samgöngur

Lottó

Lottó  20.3.2010
11 14 17 22 39 26
Jóker
0 0 8 1 9  
Áskrift á www.lotto.is
Birt án ábyrgðar

Fasteignir:
mest skoðað

Skipholt, 105 Reykjavík Skipholt Reykjavík
Kársnesbraut, 200 Kópavogur Kársnesbraut Kópavogur
Drápuhlíð, 105 Reykjavík Drápuhlíð Reykjavík
Ástún, 200 Kópavogur Ástún Kópavogur
Blásalir, 201 Kópavogur Blásalir Kópavogur
Grænahlíð, 105 Reykjavík Grænahlíð Reykjavík
Mávahlíð , 105 Reykjavík Mávahlíð Reykjavík
Álfaskeið, 220 Hafnarfjörður Álfaskeið Hafnarfjörður
Sólbaðsstofa, 110 Reykjavík Sólbaðsstofa Reykjavík
Ystasel, 109 Reykjavík Ystasel Reykjavík
Stjórn fulltrúaráðs Sjálfstæðisflokksins á Akranesi vill að stjórnendur Seðlabankans víki.

Stjórn fulltrúaráðs Sjálfstæðisflokksins á Akranesi vill að stjórnendur Seðlabankans víki. mbl.is/Ómar

Innlent | mbl.is | 13.11.2008 | 22:20

Vilja að stjórnendur Seðlabankans víki

Stjórn fulltrúaráðs Sjálfstæðisfélaganna á Akranesi samþykkti ályktun í dag þar sem hún segir óhjákvæmilegt að leita eftir viðræðum um hugsanlega aðild Íslands að Evrópusambandinu. Stjórn fulltrúaráðsins telur einnig óhjákvæmilegt að stjórnendur Seðlabanka Íslands og Fjármálaeftirlitsins víki.

Í ályktun stjórnar fulltrúaráðsins á Akranesi segir að það skori á Geir H. Haarde forstætisráðherra og formann Sjálfstæðisflokksins að skerpa nú þegar áherslur ríkisstjórnar Íslands við það mikla verkefni sem stjórnin stendur andspænis við endurreisn fjármálakerfis landsins. Forgangsverkefnið sé að slá skjaldborg um fjárhagslega framtíð heimilanna í landinu.

„Jafnframt telur stjórnin óhjákvæmilegt að nú þegar verði leitað eftir aðildarviðræðum að Evrópusambandið þannig að í ljós komi hvaða kostum þjóðin standi frammi fyrir ef til aðildar kemur.

Þá skorar stjórnin á formann Sjálfstæðisflokksins að sjá til þess að við endurreisn fjármálakerfis þjóðarinnar veljist einungis til starfa þeir sem njóta óskoraðs trausts og hæfis til starfa. Óhjákvæmilegt sé í því ljósi að stjórnendur Seðlabanka Íslands og Fjármálaeftirlitsins víki nú þegar.

Stjórn fulltrúaráðsins telur að sá vandi sem íslenskir stjórnmálamenn standa nú frammi fyrir muni leiða í ljós styrk þeirrar stefnu sem þeir standa fyrir. Það er bjargföst trú stjórnarinnar að á grundvelli Sjálfstæðisstefnunnar, með hagsmuni allra stétta fyrir augum, verði vandamál þjóðarinnar best leyst nú sem áður.“

© 2010 Árvakur hf. Öll réttindi áskilin

Fara til baka Til baka

 

Innlent — Fleiri fréttir

Í dag