Hollenskur karlmaður enn í gæsluvarðhaldi

Hollendingurinn sem tekinn var við komu sína til landsins
Hollendingurinn sem tekinn var við komu sína til landsins Golli / Kjartan Þorbjörnsson

Hollenskur karlmaður á áttræðisaldri hefur verið úrskurðaður í áframhaldandi gæsluvarðhald til 18. desember að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu og er það gert á grundvelli almannahagsmuna.

Maðurinn var handtekinn á Seyðisfirði í júní en þá fannst þar mikið magn fíkniefna í húsbíl sem kom til landsins með ferjunni Norrænu. Um var að ræða 190 kg af hassi og eitthvað af kókaíni.
 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert