Rússneskir auðmenn á Íslandi

Vladimír Pútín á góðri stundu
Vladimír Pútín á góðri stundu

Hópur rússneskra auðkýfinga er nú á landinu í skemmtiferð og fóru þeir meðal annars í dagsferð á Þingvelli í gær þar sem þeir áðu á Hótel Valhöll í hádegismat. Um er að ræða einhverja tugi manna en þeir gista í miðborg Reykjavíkur yfir helgina.

Orðrómur hefur verið á kreiki um að Vladimír Pútín, forsætisráðherra Rússlands, muni heiðra samkomuna en ekki hefur fengið staðfest hvort hann sé kominn til landsins eða sé yfir höfuð væntanlegur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert