Nýsköpunarsetur opnað

Össur Skarphéðinsson, iðnaðarráðherra, Þorsteinn Ingi Sigfússon forstjóri Nýsköpunarmiðstöðvar og Elín …
Össur Skarphéðinsson, iðnaðarráðherra, Þorsteinn Ingi Sigfússon forstjóri Nýsköpunarmiðstöðvar og Elín Sigfúsdóttir bankastjóri Landsbankans voru viðstödd opnunina.

Torgið, nýtt viðskiptasetur Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands, var opnað í Austurstræti í gær.  Þrettán sprotafyrirtæki hafa komið sér fyrir  á Torginu og eru viðskiptahugmyndirnar fjölbreyttar, allt frá hugbúnaðarþróun fyrir gsm-síma til vöruhönnunar.

Torgið er samstarfsverkefni Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands,  Samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja og Landsbankans, sem leggur Torginu til húsnæði í Austurstræti 16.

Á Torginu fá einstaklingar skrifstofuaðstöðu og stuðning sérfræðinga Nýsköpunarmiðstöðvar til að vinna að viðskiptahugmyndum.


mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert