Vilja endurreisa fyrirtæki

Nokkrir stórir lífeyrissjóðir vinna nú að stofnun sérstaks fjárfestingasjóðs í samstarfi við aðila vinnumarkaðarins.

Sjóðurinn, sem hefur verið nefndur Endurreisnarsjóður atvinnulífsins, verður stofnaður þannig að lífeyrissjóðirnir leggja honum til fjármagn sem fjárfestar. Endanleg upphæð liggur ekki fyrir en stofnféð gæti numið tugum milljarða króna. Ekki hefur verið rætt um aðkomu ríkisins að sjóðnum en viðmælendur blaðsins vilja þó ekki útiloka það. Undirbúningur að stofnun sjóðsins er hins vegar langt á veg kominn.

„Hugmyndin að þessum sjóði kviknaði mjög snemma á sérstökum neyðarfundum sem voru haldnir í kjölfar hruns bankanna,“ segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins. Auk SA og stærstu lífeyrissjóðanna koma ASÍ og Viðskiptaráð einnig að stofnun sjóðsins.

„Hlutverk sjóðsins verður að taka þátt í og móta fjárhagslega og rekstrarlega endurreisn íslensks atvinnulífs,“ segir Þorgeir Eyjólfsson, forstjóri Lífeyrissjóðs verslunarmanna, sem hefur unnið að framgangi málsins fyrir hönd lífeyrissjóðanna. Líkast til verður sjóðurinn rekinn sem hlutafélag en samlagsfélagaformið hefur ekki verið útilokað. Honum er ekki ætlað að vera „björgunarsjóður“ heldur sjóður sem fjárfestir í fyrirtækjum með góða möguleika á ávöxtun.

Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ, segir að mörg fyrirtæki séu umkomulaus og hafi tapað eigin fé sínu. ASÍ hafi talið mikilvægt að hafin yrði vinna til að endurfjármagna lífvænleg og arðbær fyrirtæki.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert