Umhverfisráðherra á þingi SÞ

Þórunn Sveinbjarnardóttir ávarpar þing Sameinuðu þjóðanna í dag
Þórunn Sveinbjarnardóttir ávarpar þing Sameinuðu þjóðanna í dag

Þórunn Sveinbjarnardóttir umhverfisráðherra flutti í dag ræðu á 14. aðiildarríkjaþingi Loftslagssamning Sameinuðu þjóðanna sem nú fer fram í Poznan í Póllandi. Þar vakti hún athygli á tillögu Íslands um að endurheimt votlendis verði viðurkennd formlega sem leið til að binda kolefni úr andrúmslofti.

Á þinginu var haldið áfram samningaviðræðum sem hófust fyrir rúmum tveimur árum um hertar aðgerðir í loftslagsmálum. Til stendur að ljúka viðræðunum með samkomulagi á 15. aðildarríkjaþinginu sem haldið verður í Kaupmannahöfn í lok árs 2009.

Í ræðu sinni sagði umhverfisráðherra að Ísland vildi reyna að halda hlýnun andrúmsloftsins innan við 2°C frá því fyrir iðnbyltingu. Slíkt þýddi að öll ríki sem losa mikið magn gróðurhúsalofttegunda þyrftu að taka virkan þátt, en þróuð ríki yrðu að leiða baráttuna. Hún sagði nauðsynlegt að gera alla helstu efnahagsgeira loftslagsvæna, auk þess að þróa og dreifa hreinni tækni, ekki síst á sviði orkumála. Einnig að Ísland vildi miðla tækni á sviðið jarðvarma til þróunarríkja.

Ráðherra vakti athygli á því að framræst og skemmt votlendi væri í dag uppspretta koltvísýrings (CO2) en hægt væri að minnka losunina og jafnvel snúa henni við og binda kolefni úr lofthjúpnum með aðgerðum til að endurheimta votlendi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert