[ Fara í meginmál | Forsíða | Veftré ]
mobile Fyrir farsíma | RSS þjónusta RSS | Podcast Podcast | Minnka letur Stærð Stækka letur

Nýtt á mbl.is

Auglýsingar

Tenglar

Samgöngur

Lottó

Lottó  13.3.2010
6 8 10 22 37 7
Jóker
2 1 5 7 8  
Áskrift á www.lotto.is
Birt án ábyrgðar

Fasteignir:
mest skoðað

Nökkvavogur, 104 Reykjavík Nökkvavogur Reykjavík
Stuðlasel, 109 Reykjavík Stuðlasel Reykjavík
Stuðlasel, 109 Reykjavík Stuðlasel Reykjavík
Sólvallagata, 101 Reykjavík Sólvallagata Reykjavík
Hryggjarsel, 109 Reykjavík Hryggjarsel Reykjavík
Ólafsgeisli, 113 Reykjavík Ólafsgeisli Reykjavík
Vallarhús, 112 Reykjavík Vallarhús Reykjavík
Öldugata, 101 Reykjavík Öldugata Reykjavík
Sumarhúsalóð, 270 Mosfellsbær Sumarhúsalóð Mosfellsbær
Álfkonuhvarf, 203 Kópavogur Álfkonuhvarf Kópavogur

mbl.is/Brynjar Gauti

Innlent | Morgunblaðið | 12.12.2008 | 05:30

Þrýsta vísitölunni upp

Eftir Önund Pál Ragnarsson og Höllu Gunnarsdóttur

Alþingi afgreiddi í gær lög um hækkun gjalda á áfengi, tóbaki, olíu og bifreiðum auk kílómetragjalds og vörugjalds af ökutækjum og eldsneyti. Viðbótartekjur ríkisins af þessu nema ríflega 3,5 milljörðum króna. Í fjárlagafrumvarpinu var gert ráð fyrir að þessi gjöld hækkuðu um 11,5% á næsta ári, en lagabreytingin tekur gildi strax í dag og nemur 12,5%.

Samkvæmt upplýsingum frá ÁTVR hækkar tóbaksverð strax í dag, en ekki áfengið. Gjald af því er tekið við innflutning og fá birgjar kost á að tilkynna nýtt verð fyrir hækkun.

Fjármálaráðherra sagði í umræðunum á Alþingi í gær að umrædd gjöld hefðu rýrnað miðað við þróun vísitölu neysluverðs og að hækkunin væri innan þeirra marka.

Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ, segir að það skipti máli hvernig staða ríkissjóðs sé rétt af. Þetta setji þrýsting á sveitarstjórnir að fara sömu leið. „Það gefur auga leið að þetta fer beint inn í lánin okkar. Þetta er líka afar gagnrýnisverð leið að fara, því þetta hittir gríðarlega skuldsettan ríkissjóð ekkert síður fyrir en heimilin. Ég efast um að á endanum hafi ríkissjóður haft af þessu tekjur. Verðbótaþáttur lána ríkisins mun auðvitað fara upp,“ segir Gylfi.

Runólfur Ólafsson, framkvæmdastjóri FÍB, segir útgjöld vegna meðalstórra bíla hækka um 20.000 krónur á ári út af þessu. Bensínlítrinn hækki um 7,70 kr. í verði og dísilolía um 6,40 krónur. Það sé verulega neikvætt að ríkið taki nú til sín undanfarnar lækkanir á eldsneytisverði.

Nánar í Morgunblaðinu. Smelltu hér til að gerast áskrifandi.

© 2010 Árvakur hf. Öll réttindi áskilin

Fara til baka Til baka

 

Innlent — Fleiri fréttir

Í dag