Fóru inn í Glitni

Mótmælendur inni í útibúi Glitnis.
Mótmælendur inni í útibúi Glitnis. mbl.is/Júlíus

Nokkrir tugir ungmenna, sem mótmæltu utan við Fjármálaeftirlitið við Suðurlandsbraut, eru nú farnir þaðan og inn í útibú Glitnis við götuna. Fólkið braut rúður í húsnæði Fjármálaeftirlitsins og reyndi að komast inn í húsið en hvarf á braut þegar lögregla kom.

Í gær ruddist hópur fólks inn í tvö útibú og skrifstofur Landsbankans í miðborg Reykjavíkur og hrópaði þar slagorð. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert