Borin von um hvít jól

Það er lítil von um jólasnjó á höfuðborgarsvæðinu þetta árið
Það er lítil von um jólasnjó á höfuðborgarsvæðinu þetta árið Kristinn Ingvarsson

Það má teljast nokkuð borin von að jólin verði hvít að þessu sinni samkvæmt upplýsingum veðurfræðings á Veðurstofu Íslands. Gera má ráð fyrir rigningu og hvassviðri næstu daga og hlýindum a.m.k. fram í miðja næstu viku. 

Björn Sævar Einarsson veðurfræðingur segir að búast megi við slagviðri og úrhellisrigningu á suðvestanverðu landinu í nótt og áfram hvassri suðvestanátt á morgun. Eitthvað mun draga úr vindi er líður á daginn en þó má gera ráð fyrir strekkingi fram á aðra nótt.  Á jóladag er spáð hvassri suðvestanátt norðvestan til á landinu en annars hægari. Él um vestanvert landið en annars staðar léttskýjað.

Á jóladagskvöld ætti vindur að hafa gengið niður og má þá fyrst gera ráð fyrir ágætisveðri á vestanverðu landinu. Mun hægara og bjartara verður um austanvert landið um allar hátíðarnar. 

Á laugardag má síðan gera ráð fyrir að rigni og hvessi að nýju.

Það verður rok og rigning um landið sunnan- og vestanvert …
Það verður rok og rigning um landið sunnan- og vestanvert um hátíðarnar. mbl.is/Golli
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert