[ Fara í meginmál | Forsíða | Veftré ]
mobile Fyrir farsíma | RSS þjónusta RSS | Podcast Podcast | Minnka letur Stærð Stækka letur

Nýtt á mbl.is

Auglýsingar

Tenglar

Samgöngur

Lottó

Lottó  13.3.2010
6 8 10 22 37 7
Jóker
2 1 5 7 8  
Áskrift á www.lotto.is
Birt án ábyrgðar

Fasteignir:
mest skoðað

Ægisgata, 101 Reykjavík Ægisgata Reykjavík
Lambafell, 861 Hvolsvöllur (dreifbýli) Lambafell Hvolsvöllur (dreifbýli)
Tungusel, 109 Reykjavík Tungusel Reykjavík
Laugateigur, 105 Reykjavík Laugateigur Reykjavík
Langalína, 210 Garðabær Langalína Garðabær
Njálsgata, 101 Reykjavík Njálsgata Reykjavík
Hverfisgata, 101 Reykjavík Hverfisgata Reykjavík
Laugavegur, 101 Reykjavík Laugavegur Reykjavík
Ásbraut, 200 Kópavogur Ásbraut Kópavogur
Dalbraut, 105 Reykjavík Dalbraut Reykjavík
Skýrslum um bankanna þrjá, Kaupþing, Landsbankann og Glitni hefur verið skilað til FME.

Skýrslum um bankanna þrjá, Kaupþing, Landsbankann og Glitni hefur verið skilað til FME. mbl.is

Innlent | mbl.is | 3.1.2009 | 17:25

Rannsaka fjárfestingar sjóða

Rannsóknir Fjármálaeftirlitsins (FME) í kjölfar falls bankanna beinast meðal annars að því að kanna viðskipti með verðbréf og markaðssetningu og fjárfestingu peningamarkaðssjóða samkvæmt upplýsingum frá FME.

Rannsóknir snúa enn fremur að öðrum þáttum en endurskoðunarfyritæki sem rannsakað hafa bankanna skiluðu skýrslum sínum til FME skömmu fyrir áramót. „Einnig hafa utanaðkomandi sérfræðingar [endurskoðunarfyritæki. innsk. blm.] skoðað ákveðna þætti sem snúa m.a. að innri reglum bankanna og lögum og reglum um fjármálafyrirtæki. Upplýsingum vegna þessarar skoðunar hefur verið skilað til Fjármálaeftirlitsins. Fjármálaeftirlitið mun vinna frekar úr upplýsingunum og meta í kjölfarið hvort tilefni sé til nánari rannsókna eða beitingu úrræða,“ segir í tölvubréfi frá FME við fyrirspurn blaðamanns um efnisatriði skýrslna endurskoðunarfyrirtækja um starfsemi bankanna. Ekki var hægt að fá nánari upplýsingar um skýrslurnar þar sem rannsókn á efnisatriðum þeirra er ekki lokið enn.

Endurskoðunarfyrirtækið Price Waterhouse Coopers rannsakaði Kaupþing, Deloitte Landsbankann og Ernst&Young Glitni. Rannsóknin á Glitni var upphaflega á höndum KPMG sem sagði sig frá rannsókninni í desember.

Fyrirtækin skiluðu skýrslum til FME skömmu fyrir áramót. Rannsókn þeirra miðaði meðal annars að því hvort brotið hafi verið gegn innri reglum bankanna og lögum og reglum um fjármálafyrirtæki.

 

 

© 2010 Árvakur hf. Öll réttindi áskilin

Fara til baka Til baka

 

Innlent — Fleiri fréttir

Í gær
Laugardaginn 13. mars