Fordæmir innrás á Gasa

mbl.is/Ómar

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, utanríkisráðherra fordæmir innrás Ísraelshers á Gasaströndina sem getur aldrei annað en beinst að saklausum íbúum sem eru varnarlausir, innilokaðir og hafa skipulega verið sviptir aðgangi að nauðþurftum, eins og segir í tilkynningu utanríkisráðherra.

Svo harkaleg beiting aflsmunar setur þá kröfu á herðar altþjóðasamfélaginu að ganga á milli og senda friðargæslulid inn á svæðið. Utanríkisráðherra harmar afstöðuleysi öryggisráðs Sameinuðu Þjóðanna.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert