Fjandsamleg yfirtaka á framsóknarfélagi

Frá fundi Framsóknarfélags Reykjavíkur í gærkvöldi.
Frá fundi Framsóknarfélags Reykjavíkur í gærkvöldi. mbl.is/Golli

Hópur félaga í Framsóknarflokknum, þar á meðal Sæunn Stefánsdóttir, ritari flokksins, og Jón Sigurðsson, fyrrverandi formaður, hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem fullyrt er að fjandsamleg yfirtaka hafi farið fram á Framsóknarfélagi Reykjavíkur í gærkvöldi með skráningu 70 nýrra félaga undir lok dagsins.

Segist hópurinn fordæma þessi vinnubrögð og telja þau í algerri andstöðu við vilja fólks um ný vinnubrögð í stjórnmálum.

Yfirlýsingin er eftirfarandi: 

Undirrituð, félagar í Framsóknarflokknum, sóttum fund Framsóknarfélags Reykjavíkur í gærkvöldi, þar sem fundarefni var val á fulltrúum þess á flokksþing Framsóknarflokksins síðar í mánuðinum. Öll höfum við starfað í flokknum um nokkurt skeið þó mislengi.

Á fundinum urðum við vitni að fjandsamlegri yfirtöku á félaginu. Hún var gerð með skráningu um 70 nýrra félaga undir lok dags og mættu hinir nýju félagar á fundinn. Með þeim hætti var félagið tekið yfir og tillaga borin fram um nýjan fulltrúalista á flokksþing í stað þess sem stjórn hafði lagt fram. Sá listi var tilraun til að hleypa að öllum sjónarmiðum og því að okkar mati lýðræðislega unnin. Jafnframt var gerð tilraun til að setja fundarstjóra af til að ná tökum á fundinum. Ekki kom fram að yfirtakan byggði á nokkrum málefnalegim grundvelli heldur var tilgangurinn greinilega sá að fá nýjan hóp framsóknarmanna með atkvæðisrétt á flokksþingið sem framundan er.

Við fordæmum þau vinnubrögð sem þarna voru viðhöfð og teljum þau í algerri andstöðu við vilja fólks um ný vinnubrögð í stjórnmálum. Framsóknarflokkurinn nær ekki trausti kjósenda með þessum hætti og fjandsamleg yfirtaka líkt og sú sem átti sér stað í gærkvöldi lýsir andlýðræðislegum vinnubrögðum.

Anna Margrét Ólafsdóttir
Atli Karl Ingimarsson
Birna Kristín Jónsdóttir
Einar Erlendsson
Einar Sörli Einarsson
Halldór Lárusson
Helga Björk Eiríksdóttir
Ingólfur Sveinsson
Jón Helgi Eiðsson
Jón Sigurðsson
Kristín Helga Guðmundsdóttir
Pétur Gunnarsson
Sigurbjörn Ingólfsson
Sæunn Stefánsdóttir.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert