Nýr hugbúnaður gegn barnaklámi

Stefán Eiríksson, lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu, Kristleifur Daðason, Baldur Jóhannesson og …
Stefán Eiríksson, lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu, Kristleifur Daðason, Baldur Jóhannesson og Friðrik Heiðar Ásmundsson frá Eff2 Technologies og Björn Bjarnason dóms- og kirkjumálaráðherra.

Björn Bjarnason dóms- og kirkjumálaráðherra, Stefán Eiríksson, lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu, og fyrirtækið Eff2 Technologies hafa undirritað tímabundinn verksamning um þróun, uppsetningu og afnot á hugbúnaðarkerfi fyrir embætti lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu sem gerir lögreglunni kleift að bera kennsl á barnaklám og annað ólögmætt efni í tölvum sem hafa verið haldlagðar.

Dómsmálaráðuneytið segir, að með þessu samstarfi lögreglunnar og Eff2 Technologies verði Ísland fyrsta landið í heiminum sem notar slíka lausn í baráttunni gegn barnaklámi og öðru ólögmætu efni.

Tæknin sem gerir þetta mögulegt ber heitið Videntifier Forensic og verður fullþróuð í nánu samstarfi við lögregluna á höfuðborgarsvæðinu. Tæknin býður einnig upp á aukna möguleika til að rannsaka uppruna og dreifingu barnakláms og ná þannig frekar til þeirra sem framleiða þetta efni og dreifa í stórum stíl. Slíkt yrði þá unnið í náinni samvinnu við lögregluyfirvöld í öðrum löndum.

Eff2 Technologies er sprotafyrirtæki úr Háskólanum í Reykjavík, stofnað síðla árs 2007. Það hefur unnið til verðlauna fyrir Videntifier-verkefnið bæði hér heima og á erlendri grundu. Videntifier getur munað hvernig allt að hundrað þúsund klukkutímar af vídeóefni líta út, og leitað í vídeósöfnum á allt að hundraðföldum rauntíma. Videntifier ber kennsl á vídeóefni jafnvel þótt því hafi verið breytt umtalsvert t.d. með þjöppun, textun, skekktum hlutföllum, snúningi eða speglun, svo dæmi sé tekið.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert