[ Fara í meginmál | Forsíða | Veftré ]
mobile Fyrir farsíma | RSS þjónusta RSS | Podcast Podcast | Minnka letur Stærð Stækka letur
blog.is

Nýtt á mbl.is

Auglýsingar

Tenglar

Samgöngur

Lottó

Lottó  13.3.2010
6 8 10 22 37 7
Jóker
2 1 5 7 8  
Áskrift á www.lotto.is
Birt án ábyrgðar

Fasteignir:
mest skoðað

Ljósvallagata, 101 Reykjavík Ljósvallagata Reykjavík
Kópavogsbakki, 200 Kópavogur Kópavogsbakki Kópavogur
Barmahlíð, 105 Reykjavík Barmahlíð Reykjavík
Drápuhlíð, 105 Reykjavík Drápuhlíð Reykjavík
Drafnarstígur, 101 Reykjavík Drafnarstígur Reykjavík
Lóuhraun, 220 Hafnarfjörður Lóuhraun Hafnarfjörður
Hafnarstræti, 600 Akureyri Hafnarstræti Akureyri
Ystasel, 109 Reykjavík Ystasel Reykjavík
Blásalir, 201 Kópavogur Blásalir Kópavogur
Grænahlíð, 105 Reykjavík Grænahlíð Reykjavík
Geir H. Haarde, forsætisráðherra.

Geir H. Haarde, forsætisráðherra. mbl.is/Kristinn Ingvarsson

Innlent | Morgunblaðið | 17.1.2009 | 16:54

Geir: Árið 2009 verður mjög erfitt

Eftir Björn Jóhann Björnsson og Magnús Halldórsson

Bloggað um fréttina

Geir H. Haarde, forsætisráðherra, segir að árið í ár verði mjög erfitt, í viðtali við sunnudagsblað Morgunblaðsins þar sem fjallað er tímann sem liðinn er frá hruni bankanna. „Ríkiskerfið greip því miður ekki inn í óhóflega stækkun bankakerfisins, það er hið gremjulega í þessu máli."

Ef vel gengur verður árið 2010 auðveldara

„Við höfum ekki dregið dul á það að árið 2009 verður mjög erfitt. Ef vel gengur gæti árið 2010 orðið auðveldara, sérstaklega þegar líður fram á árið. Þetta fer mikið eftir því hver þróunin verður í alheimsbúskapnum. Það er ekki okkur í hag að öðrum gangi illa. Gríðarlegir erfiðleikar eru framundan víða um lönd," segir Geir og nefnir bankakerfið í Bretlandi sem dæmi.

Þar hafi gífurlegum fjárhæðum verið dælt inn í bankana án þess að það hafi haft mikið að segja. Nýr forseti Bandaríkjanna, Obama, hafi jafnframt kynnt umfangsmiklar áætlanir til að örva hagkerfið og á meginlandi Evrópu sé stöðugt verið að grípa inn í hjá bönkunum."

Vorum ekki fær um að bjarga kerfinu

„Þetta er ekkert venjulegt ástand. Þegar þetta skall á okkur hér í september af fullum þunga þá voru okkar fjármálastofnanir ekki undir það búnar. Meðal annars vegna þess að þær höfðu hegðað sér gáleysislega, tekið mikla áhættu og ekki sýnt þá ábyrgð sem þarf í þessari starfsemi. Ríkiskerfið greip því miður ekki inn í óhóflega stækkun bankakerfisins, það er hið gremjulega í þessu máli, ekki að við skyldum hafa verið með opið bankakerfi og allt sem því fylgdi á evrópska efnahagssvæðinu.

Það var í sjálfu sér eðlilegt og ekki hægt að kenna þeirri stefnu um, enda bætti hún lífskjörin hér stórlega í mörg ár. En þarna ætluðu menn sér um of, og því voru menn óviðbúnir þegar fjármálaóviðrið skall á okkur. Þegar þarna var komið sögu, um mánaðamótin september-október, var staðan sú að við vorum ekki fær um að bjarga þessu kerfi.

Ekki bætti svo úr skák hvernig Bretar höguðu sér, bæði með beitingu hryðjuverkalaganna og hvernig starfsemi Kaupþings í Bretlandi var tekin yfir, sem að stofni til var 100 ára gamall breskur banki. Sú staða kom okkur gersamlega í opna skjöldu, við töldum að Kaupþing myndi lifa þetta af, alveg fram á síðustu stundu," segir Geir í ítarlegri umfjöllun Morgunblaðsins.

Nánar í Morgunblaðinu. Smelltu hér til að gerast áskrifandi.

© 2010 Árvakur hf. Öll réttindi áskilin

Fara til baka Til baka

 

Tengdar fréttir - Bankakreppa

Viðskipti | mbl.is | 02.11.2009 | 10:42

Biðu sömu örlaga og Ísland

Viðskipti | AFP | 12.10.2009 | 15:07

Vilja að bankarnir endurgreiði aðstoðina

Innlent | mbl.is | 06.10.2009 | 14:39

Merki um siðrof í þjóðfélaginu

Viðskipti | mbl.is | 01.10.2009 | 14:58

Eignir metnar á 775 milljarða

Viðskipti | mbl.is | 30.09.2009 | 08:12

Auknar álögur á íbúa Grimsby

Viðskipti | mbl.is | 29.09.2009 | 10:02

Lánastefna Glitnis svipuð og Kaupþings

Viðskipti | mbl.is | 28.09.2009 | 10:48

Kröfuhafar fá 22-36% upp í kröfur

Innlent | mbl.is | 26.09.2009 | 16:30

Hvers vegna? Hvað svo?

Innlent | Morgunblaðið | 24.09.2009 | 05:50

FME rannsakar allsherjar markaðsmisnotkun banka

Viðskipti | Morgunblaðið | 24.09.2009 | 05:30

Skuldabréf bankanna hækka

Fleiri tengdar fréttir

Leita í fréttum mbl.is

Innlent — Fleiri fréttir

Í dag
Í gær