Alþingishúsið skrúbbað

Oft hefur verið subbulegt umhverfis Alþingishúsið eftir að bankarnir hrundu og fólk sneri reiði sinni að þinginu og kastaði eggjum og öðru lauslegu í veggina. Húsið hefur þó aldrei séð það svartara en í gær en hreinsunarstarfið hófst snemma í morgun.

Ætla má að þingmennirnir geti því snúið aftur í dag án þess að hafa áhyggjur af því að ekki sé búið að gera hreint fyrir þeirra dyrum.

Mótmælendur sögðust margir í gær ætla að mæta aftur þegar þing kæmi saman í dag svo ekki er víst að þetta hreinsunarstarf verði til langs tíma.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert