Greinir á um kosningar

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir og Steingrímur J. Sigfússon
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir og Steingrímur J. Sigfússon mbl.is/Árni Sæberg

Viðræður um minnihlutastjórn Samfylkingarinnar og Vinstri grænna eru langt á veg komnar og búist við að þeim ljúki í kvöld eða á morgun. Nokkur áhersluatriði hafa komið upp sem flokkana greinir á um. Helst ber að nefna kjördag þingkosninga en Vinstri grænir vilja kjósa mun fyrr en Samfylkingin eða fyrir páska, í lok mars eða byrjun aprílmánaðar. Þetta staðfestir Steingrímur J. Sigfússon, formaður VG, en hann segist helst vilja sjá kosningar síðasta laugardag fyrir páska.

Samkvæmt heimildum blaðsins eru hvorki Samfylkingin né Framsóknarflokkurinn, sem lýst hefur vilja til að verja stjórnina vantrausti, tilbúin að styðja boðað frumvarp VG um frystingu eigna auðmanna. Er það talið geta stangast á við stjórnarskrá og lög. Steingrímur segir þetta ekki hafa verið borið undir framsóknarmenn.

Flokkarnir eru samkvæmt upplýsingum blaðsins sammála um flest meginatriði við verkstjórnina til kosninga eins og aðgerðir til að bjarga heimilum og fyrirtækjum í landinu, breytingar á bankastjórn Seðlabankans, endurskoðun á skipulagsbreytingum í heilbrigðiskerfinu og afnám eftirlaunalaganna.

Steingrímur J. segir að ekki standi til að kjósa um hvort ganga eigi til aðildarviðræðna við ESB samhliða kosningum. Þá sé flokkur hans raunsær í því að samningum við IMF verði ekki sagt upp.

Nánar er fjallað um málið í Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert