Magnús Stefánsson hættir í stjórnmálum

mbl.is/Jim Smart

Magnús Stefánsson, þingmaður Framsóknarflokksins í Norðvestur kjördæmi hefur ákveðið að gefa ekki kost á sér til framboðs fyrir komandi alþingiskosningar. Magnús segir niðurstöður af nýafstöðnu flokksþingi flokksins bera með sér að það sé almennur vilji flokksfólks að gefa nýju fólki tækifæri.

Magnús Stefánsson var fyrst kjörinn á Alþingi fyrir Vesturlandskjördæmi í alþingiskosningunum árið 1995. Hann náði ekki endurkjöri í alþingiskosningunum árið 1999, en tók sæti á Alþingi á ný vorið 2001 þegar Ingibjörg Pálmadóttir þáverandi heilbrigðis-og tryggingaráðherra lét af þingmennsku. Í alþingiskosningum 2003 var Magnús kjörinn þingmaður hins nýja Norðvestur kjördæmis og var endurkjörinn í alþingiskosningunum árið 2007.

Á þingmannsferli sínum hefur Magnús gegnt ýmsum verkefnum og ábyrgðarstörfum fyrir Framsóknarflokkinn og fyrir hönd Alþingis, bæði á vettvangi Alþingis og annars staðar. Hann tók við embætti félagsmálaráðherra vorið 2006 og gegndi því fram yfir alþingiskosningarnar árið 2007. Nú eru liðin nærri 14 ár frá því Magnús var fyrst kjörinn á Alþingi.

„Ástæður þess að ég hef tekið þessa ákvörðun eru þær að ég á að baki langan feril sem alþingismaður og ráðherra, tel að nú sé tímabært að láta af þingmennsku og að ég takist á við ný verkefni.  Framsóknarflokkurinn er nú í mikilli framsókn, margt framsóknarfólk hefur áhuga á að takast á við krefjandi verkefni á vettvangi Alþingis, enda býr flokkurinn vel að mörgum hæfum einstaklingum til þeirra verka.  Eins og niðurstöður af nýafstöðnu flokksþingi flokksins bera með sér er það almennur vilji flokksfólks að gefa nýju fólki tækifæri til forystu og starfa á vegum Framsóknarflokksins.  Ég vil því á þessum tímamótum leggja mitt af mörkum til þess að stuðla að endurnýjun og breytingum á forystu og þingliði flokksins með því að gefa ekki kost á mér til endurkjörs,“ segir Magnús í yfirlýsingu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert