[ Fara í meginmál | Forsíða | Veftré ]
mobile Fyrir farsíma | RSS þjónusta RSS | Podcast Podcast | Minnka letur Stærð Stækka letur
blog.is

Nýtt á mbl.is

Auglýsingar

Tenglar

Samgöngur

Lottó

Lottó  4.9.2010
13 14 30 36 37 16
Jóker
3 4 6 6 7  
Áskrift á www.lotto.is
Birt án ábyrgðar
Fátækt

Fasteignir:
mest skoðað

Víðimelur, 101 Reykjavík Víðimelur Reykjavík
Möðrufell, 111 Reykjavík Möðrufell Reykjavík
Engjasel, 109 Reykjavík Engjasel Reykjavík
Hvassaleiti, 108 Reykjavík Hvassaleiti Reykjavík
Byggðarendi, 108 Reykjavík Byggðarendi Reykjavík
Álftamýri, 108 Reykjavík Álftamýri Reykjavík
Fossahvarf, 203 Kópavogur Fossahvarf Kópavogur
Fossahvarf, 203 Kópavogur Fossahvarf Kópavogur
Litliás, 311 Borgarnes (dreifbýli) Litliás Borgarnes (dreifbýli)
Grýtubakki , 109 Reykjavík Grýtubakki Reykjavík
Hæstiréttur.

Hæstiréttur. Sverrir Vilhelmsson

Innlent | mbl.is | 5.2.2009 | 16:42

Tveggja ára fangelsi fyrir kynferðisbrot

Karlmaður á áttræðisaldri var í Hæstarétti í dag dæmdur í tveggja ára fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn tveimur stúlkum. Brotin voru trúnaðarbrot, en þau beindust að stúlkum er honum var beint og óbeint treyst fyrir þegar þær voru litlar. Manninum var að auki gert að greiða fórnarlömbum sínum miskabætur, 900 þúsund og 500 þúsund krónur.

Maðurinn braut gegn stjúpbarnabarni sínu, stúlku fæddri árið 1989, með því að kafa á brjóstum hennar og bringu innanklæða í eitt skipti á árunum 1999-2003 Einnig braut hann gegn stúlku fæddri 1982 þegar hún var ellefu ára, káfaði á henni og fór með fingur í kynfæri.

Maðurinn fór fram á það fyrir Hæstarétti að geðlæknar yrðu dómkvaddir og fengnir til að meta geðheilbrigði sitt. Í matsgerð sem lögð var fyrir Hæstaréttar segir að að engin merki séu um geðveiki, andlegan vanþroska eða hrörnun, rænuskerðingu eða annað samsvarandi ástand hjá manninum. Geðlæknarnir töldu ekki neitt geta komið í veg fyrir að refsing beri árangur. Líklegt megi þá telja að maðurinn geti verið hættulegur börnum, sérstaklega ókynþroska stúlkum, en barnagirnd sé almennt ekki álitin „vel meðhöndlanlegt ástand.“

© 2010 Árvakur hf. Öll réttindi áskilin

Fara til baka Til baka

 

Innlent — Fleiri fréttir

Í gær
Laugardaginn 4. september