Huga þarf að sumarbústöðum í Borgarfirði

Um klukkan sex í kvöld varð rafmagnslaust í Syðri-Hraundal í Borgarfirði og var straumlaust á svæðinu frá Varmalandi, Svignaskarði, Eskiholti, Galtarholti og Stórafjalli.  Vinnuflokkur frá Borgarnesi lauk viðgerð vegna þessa um 20:30.
 
Starfsmenn RARIK hvetja sumarhúsaeigendur til þess að huga að húsum sínum, þar sem kalt er í veðri og mikið frost á svæðinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert