Banki í fasteignaviðskiptum?
Bloggað um fréttina
-
Vésteinn Gauti HaukssonÁ hvaða verði selur Frjálsi sér íbúðirnar?
„Frjálsi fjárfestingarbankinn býður í eignir á uppboði og yfirleitt verjum við okkar kröfu, erum yfirleitt á fyrsta veðrétti,“ segir Kristinn Bjarnason, framkvæmdastjóri Frjálsa fjárfestingarbankans, sem hefur stofnað félag, Leiguhlíð, í kringum íbúðirnar sem hann leysir til sín og í gegnum það eru íbúðirnar leigðar út á almennum markaði.
Í gegnum félagið eru um 20 íbúðir í útleigu sem hafa verið teknar í nauðungarsölu. Jafnframt upplýsir Kristinn að eitthvað sé um að fólk komi að máli við bankann, ef það hefur frétt af því að ákveðin eign hafi verið keypt á uppboði, og falist eftir því að kaupa viðkomandi eign. Í slíkum tilfellum gengur bankinn frá sölu á eigninni.
„Ef við eignumst eignina tekur ákveðinn tíma að fá hana, yfirleitt 2-4 mánuði. Þegar við erum búin að taka hana, standsetja hana og setja í útleigu, er eignin yfirleitt seld í dótturfélag bankans, sem er sér leigufélag utan um fasteignir,“ segir Kristinn. Leiguhlíð yfirtekur leigusamninginn og innheimtir leigu. Kristinn segir bankann almennt ekki reyna að selja eignirnar, mjög lítið sé um það. „Markaðurinn er það þunnur og við höfum ekki viljað koma með offramboð á eignum á markaðinn, sem við erum að taka á uppboði,“ segir hann og bætir því við að séð verði til með sölu þegar markaður fer að glæðast eftir tvö til þrjú ár.
Nánar er fjallað um málið í Morgunblaðinu í dag.
Nánar í Morgunblaðinu. Smelltu hér til að gerast áskrifandi.
Til baka








Senda inn efni



